Valsblaðið - 01.05.2010, Page 40

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 40
Nám: Útskrifast um jólin af íþróttabraut úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Kærasti: Omar Páll Sigurbjartsson. Hvað ætlar þú að verða: Draumurinn er að komast út í atvinnumennsku en eftir það stefni ég á íþróttakennarann og þjálf- un. Af hverju Valur: Fannst það mest spennandi liðið og með bestu þjálfarana þegar ég skipti yfir 2007. Hjá hvaða liðum hefur þú verið í fót- bolta: Var í KFR (Knattspyrnufélagi Rangæinga) upp alla yngri flokkana og skipti svo yfir í Val þegar ég var á eldra ári í 3. flokki. Frægur Valsari í fjölskyldunni: Nei það held ég ekki, pabbi er samt harður valsari. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í fótboltanum: Ég held ég gæti ekki beðið um betri stuðning. Þau voru mjög dugleg að skutlast með mig á Hvolsvöll eða út í iþrótthús þegar ég var í KFR, komu svo á öll mót. Fyrsta árið mitt í Val var ég ekki með bílpróf svo þau keyrðu mig frá Hellu og til Reykjavíkur 4-5 sinnum í viku. í dag koma þau á eins marga leiki og þau geta. Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Vinna alla titlana aftur og komast lengra í Evr- ópukeppninni. Af hverju fótbolti: Besti vinur minn æfði fótbolta og ég var alltaf með honum og pabba hans úti í fótbolta á milli snúru- stauranna í garðinum hjá honum. Einn daginn þurftum við að hætta því hann var að fara á æfingu, það kom aftur upp 2 dögum seinna og þá fékk ég að fara með honum og hef æft síðan þá. Æfði samt líka körfubolta og frjálsar en þurfti að hætta í körfunni eftir 10. bekk til að taka fótboltann af alvöru. Fannst smá leiðin- legt að hætta í körfunni þó að fótboltinn hafi alltaf verið skemmtilegastur. Framtíðarfólk Dreymir um atvinnumennsku Dagný Brynjarsdóttir er 19 ára og leikur fótbolta með meistaraflokhi kvenna Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Var mjög nálægt því að setja Islandsmet í 800m hlaupi þegar ég var 11-12 ára, hætti áður en mér tókst það. Átti einnig að fara á landsliðsæfingu í körfubolta þegar ég var 15 ára en fór ekki því ég vissi að ég var að fara að hætta. Á tvo leiki í bikarnum með meistaraflokki Heklu (liðið á Hellu). Hvernig var síðasta tímabil: Æðislegt. Held að það sé ekki hægt að biðja um betra sumar. Hefði samt verið gaman að komast áfram í 16 liða úrslitin í Evrópu- keppninni. Vinnið þið aftur alla titla á næsta tíma- bili: Vonandi, það er allavega stefnan. Besti stuðningsmaðurinn: Siggi Már og félagarnir 3 sem mæta á alla leiki með okkur. Skemmtilegustu mistök: Að geta ekki unnið pabba minn í badminton. Erfiðustu samherjarnir: Dóra María og Fríða. Erfiðustu mótherjarnir: Stjarnan í sum- ar. Eftirminnilegasti þjálfarinn: Freyr Alexandersson. Fyndnasta atvik: Þegar við í Val vorum í Evrópukeppninni í Færeyjum 2007, við gistum þar í mjög draugalegum skóla. Seinustu nóttina var Hallbera í górillu- búningi og tók mig og Andreu með sér og við fórum og vöktum Freysa. Hef sjaldan heyrt gaur öskra jafn mikið. Það munaði líka litlu að Hallbera yrði barin. Stærsta stundin: Þegar ég spilaði fyrsta leikinn minn á Laugardalsvelli með A- landsliðinu. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki kvenna hjá Val: Kata fyrirliði. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki karla hjá Val: Eddi. Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót- bolta hjá Val: Þeir eru virkilega góðir stelpumegin en hef ekki fylgst nógu vel með strákunum. Hvað lýsir þínum húmor best: Mjög einfaldur, hlæ bara að flestu held ég. Mottó:Winners never quit and quitters never win. Leyndasti draumur: Komast í atvinnu- mannadeildina í Bandaríkjunum. Við hvaða aðstæður líður þér best: Að leika mér á fótboltavellinum heima á Hellu með vinum mínum. Hvaða setningu notarðu oftast: Þú veist... og fattaru. Skemmtilegustu gallarnir: Hvað ég get verið mikil ljóska. Hvað er það fallegasta sem hefur verið sagt við þig: hmm kannski, égelska þig. Fullkomið laugardagskvöld: Heima á Hellu í góðu veðri með fjölskyldunni. Fyrirmynd þín í fótbolta: Abby Wam- bach er mjög góð en svo er C. Ronaldo algjört uppáhald. Landsliðsdraumar þínir: Að ná föstu sæti í byrjunarliðinu. Besta bíómynd: Lion King, Toy- Story og Hitch. Besta bók: Harry Potter bækurnar. Besta lag: Hear You Me með Jimmy Eat World. Uppáhaldsfélag 1 í enska boltanum: West Ham en samt Arsenal í stóru keppn- unum sem West Ham kemst aldrei í. Uppáhalds erlenda fótboltafélagið: Real Madrid. Eftir hverju sérðu mest: Sé mest eftir fjórum 5um sem ég fékk á fyrsta árinu mínu í framhaldsskóla. Finnst frekar leið- inlegt að hafa þær þarna núna en mér var nákvæmlega sama þá. Nokkur orð um núverandi þjálfara: Gunni: Þjálfaði mig í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar- enda: Alveg frábær bara, klefinn okkar hefði samt alveg mátt vera aðeins stærri. Hvað finnst þér að eigi að gera til að halda upp á 100 ára afmæii Vals 2011: Bara halda suddalega veislu. 40 Valsblaðið 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.