Valsblaðið - 01.05.2010, Page 43
Helsta hindnun að
fólk nái ánangni en
vantnú á eigin getu
Sara Diljá Sigurðardóttir er 15 ára og
leikur körfubolta með 10. flokki
Sara Diljá hefur æft körfubolta síðan hún
var 8 ára og hún gekk til liðs við Val
haustið 2008 eftir að hafa farið til Gauta-
borgar um vorið í keppnisferð.
Hún hefur tvisvar sinnum fengið við-
urkenninguna sem leikmaður flokksins
og finnst það skipta miklu máli. Það sýn-
ir mér að ég er að standa mig vel og hvet-
ur mig til að gera betur. Vorið 2010 fékk
ég Einarsbikarinn og það skipti mig mjög
miklu máli og mér finnst mjög mikilvægt
að það sé haldið áfram að veita þessi
verðlaun."
Telur þú að meistaraflokkur Vals eigi
eftir að ná titlum í vetur í körfubolta?
„Meistaraflokkur karla hefur nú þegar
unnið hraðmótsbikar Vals, en annars tel
ég meistaraflokk ekki eiga eftir að vinna
neina titla en eg held að bæði karla- og
kvennaflokkur eigi eftir að komast upp
úr fyrstu deild í vetur. Ég held að yngri
flokkarnir i körfubolta eigi því miður
ekki eftir að ná neinum titli þó að þeir
eigi eftir að ná langt. Uppbyggingin í
kvennaflokkum í körfubolta hjá Val
gengur frekar illa, það eru fáar stelpur að
æfa og því keppum við bara í tveimur
flokkum en nýjar stelpur eru alltaf vel-
komnar."
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum? „Ég hef
fengið mjög mikinn stuðning og hvatn-
ingu frá mömmu og pabba og bara allri
fjölskyldunni, mér finnst það skipta mjög
miklu máli að þau styðji mig og hjálpi
mér að verða betri en ég er núna. Þau
hafa líka verið mjög dugleg að mæta á
leiki sem eru hér í bænum til að hvetja
liðið.“
Hvernig er hópurinn? „Okkur er búið
að ganga frekar vel, við unnum alla leik-
inna okkar í 10. flokki í b riðli, en okkur
gekk ekki eins vel í stúlknaflokki þar
töpuðum við tveimur leikjum og unnum
einn. Mér finnst hópurinn mjög góður og
þetta eru mjög skemmtilegar stelpur og
margar nýjar stelpur eru að byrja og ég
held að við eigum eftir að ná betri árangri
heldur en í fyrra. Við vorum að byrja
með nýjan þjálfara, Birgi Mikaelsson og
mér lýst mjög vel á hann.“
Skemmtileg atvik úr boltanum? „í
október 2009 fórum við stelpurnar fædd-
ar 1995 og 1994 til ísafjarðar að keppa,
það var mjög gaman sérstaklega þar sem
mjög góður mórall var í hópnum. Þegar
við komum til ísafjarðar kepptum við tvo
leiki á móti KFÍ og Herði, gaman er að
segja frá því að við unnum báða leikina.
Eftir leikina fengum við okkur að borða,
löbbuðum um bæinn og sváfum svo í
félagsmiðstöð þarna fyrir vestan. Þetta
var mjög skemmtileg ferð og mjög svo
eftirminnileg.“
Fyrirmyndir í körfubolta? „Fyrirmynd-
ir mínar í körfubolta eru Helena Sverris,
sem spilaði með Haukum og spilar núna
með háskólaliðinu TCU í Ohio. Annars
er það Shaq 0‘Neil sem spilar með
Boston Celtics í NBA
Hvað þarf til að ná langt í körfubolta
eða íþróttum almennt? „Það sem mér
finnst þurfa til að ná langt í íþróttum er
áhugi, ef þér finnst íþróttin ekki skemmti-
leg þá nærðu aldrei langt. Maður þarf að
æfa sig; aukaæfingin skapar meistarann.
Það sem ég þarf aðallega að bæta hjá mér
eru skotin og boltameðferð og almennur
styrkur. Og svo bara muna, helsta hindrun
að fólk nái árangri er vantrú á eigin getu.“
Hvers vegna körfubolti? „Þegar ég var
8 ára fór vinkona mín á körfuboltaæfingu
og ég ákvað að fara með og mér fannst
það mjög gaman svo ég hélt áfram en
^tVPMRPRIVRMIRIMIPiRPIIPRIHIRilllRlliMIIRRRIIICI
hún er löngu hætt. Síðan þá hef ég æft
körfubolta af kappi og finnst það
skemmtilegra með hverjum deginum.
Þegar ég var 6 ára æfði ég ballet en mér
fannst það ekki mjög skemmtileg og
hefði ekki átt neina framtíð í þeirri íþrótt
vegna stærðar."
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val? „Mikil-
vægast er að vera með góða þjálfara og
hafa reglulega æfingarbúðir fyrir alla og
að auki finnst með að það þyrfti að vera
með vikulegar æfingar fyrir þá sem skara
fram úr.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
körfuboita og lífínu almennt? „Mínir
körfuboltadraumar eru að komast í
WNBA í Bandaríkjunum, það er draum-
urinn, annars er takmarkið að komast í
gott lið í Evrópu. Mig langar líka að fara
í háskóla í Bandaríkjunum og fá að spila
í háskólaboltanum. Landsliðsdraumar hjá
mér eru að komast í A-landslið íslands
og ná árangri með þeim. En markmiðið
núna er að komast í U16 og fara á Norð-
urlandamótið í Svíþjóð næsta vor.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Frændi minn sem er látinn
núna, Baldur Karlsson, hann var í Val
þegar Friðrik Friðriksson var þar, en því
miður var hann ekki þekktur fyrir neitt
sérstakt. Hins vegar æfði pabbi minn
körfubolta með Keflavík og var í ung-
lingalandsliðinu."
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson stofnaði Val árið
1911.“
Hvað finnst þér að Valur eigi að gera
til að fagna 100 ára afmælinu? „Mér
finnst að það ætti að setja kraft í kvenna-
starfið og halda síðan risaveislu fyrir alla
félaga Vals.“
Valsblaðið 2010
43