Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 44
Kristín Ýr byrjaði ung að æfa fótbolta og
æfði þá eingöngu með strákum. Alla tíð
hefur hún verið mikil keppnismanneskja
og lagt mikið á sig til að ná árangri og
hefur með Val hampað mörgum titlum,
bæði í yngri flokkum og í meistaraflokki.
Hún lék allmarga leiki með yngri lands-
liðum íslands en hefur ekki gengið vel að
ná sæti í A landsliðinu og lítið fengið að
spila. Margir voru búnir að afskrifa Krist-
ínu sem afreksmann í fótbolta þegar hún
átti í þrálátum meiðslum fyrir nokkrum
árum en það hvarflaði aldrei að henni að
gefast upp og undanfarin tvö tímabil hafa
verið frábær og hún á sér þann draum að
geta haldið ótrauð áfram að spila fót-
bolta. Það er ekki á allra vitorði að Krist-
ín Ýr er einnig fyrrverandi landsliðsmað-
ur í borðtennis. „Mig dreymir um að geta
spilað fótbolta og verið upp á mitt besta
þangað til að ég ákveð sjálf að hætta.
Eftir Guðna Olgeirsson
Freyr segir að ég
sé markasjúkasti
leikmaður íslands
Knistín Ýn Bjarnadóttin hefur undanfarin tvii ár
fengið gullskóinn sem marhahæsti leihmaðnr
íslandsmótsins í knattspyrnu. Kristín Ýr
er uppalinn Valsari ng hefur verið hluti af
sigursælasta kvennaliði síðari tíma hór á landi
Ekki að það verði tekið frá mér út af
meiðslum eða einhverju slíku. Ég bið
ekki um annað.“ Þegar talið barst að því
hvort raunhæft sé að Valsstelpurnar haldi
áfram á næsta tímabili á sigurbraut stóð
ekki á svarinu hjá Kristínu. „Að sjálf-
sögðu er það raunhæft. Og það er ekkert
annað en eðlilegt að stefna að því mark-
miði. Það fer enginn alvöru meistari að
stefna að því að lenda í 4. sæti á næsta
tímabili."
Kristín Ýr lék þó nokkra leiki með
U17, U19 og U21 en hefur gengið illa að
tryggja sér sæti í A landsliðinu. „Það eru
mér vonbrigðið hversu illa mér hefur
gengið að festa mig í sessi í A landslið-
inu. Landsliðsþjálfarinn segir reyndar að
það eigi enginn fast sæti í landsliði og að
þeir bestu spili hvern leik. Mér finnst nú
skrýtið að hann segi það því að ég hef
bara lítið sem ekkert fengið að spila.“
Nú hefiir þú verið markahœsti leik-
maður íslandsmótsins í knattspyrnu und-
anfarin tvö ár. Hefto' þú alltaf verið
svona mikill markaskorari? „Ég man
ekki eftir því að hafa verið mikill marka-
skorari í yngri flokkum. Það er bara góð
tilfinning að ná þessu tvisvar, viðurkenni
að það var aðeins sætara í fyrra skiptið
þar sem það var í fyrsta skipti og það var
óvíst fram á seinustu mín hver fengi
gullskóinn. Núna var það öruggt ein-
hverjum umferðum fyrir lok móts.
Það sést að liðsheild Valsliðsins er
geysiöflug. Hvað gerið þið til að efla
liðsandann? „Það eru persónuleikarnir
sem mynda hópinn. Þetta eru allt brjálað-
ir keppnismenn, ótrúlega tapsárir og til-
búnir að leggja sig aðeins meira fram og
taka þessi aukaskref til að ná árangri. Til-
búnir að fórna öllu til að vera bestir. Við
erum brjálaðar á æfingum, förum í slag
og gerum hluti sem við myndum ekki
gera inni á vellinum. Förum svo saman í
bíó eftir æfingu, á rómantíska gaman-
mynd og deilum tissjúum. Við erum
margar búnar að vera hluti af þessum
hópi mjög lengi og höfum upplifað margt
saman. Það er örugglega einn stór partur
af því hversu sterk liðsheildin er.“
Hvernig finnst þér umgjörðin hjá Val?
„Þetta er allt til fyrirmyndar. Frábært fólk
sem vinnur óeigingjarnt starf og lætur
okkur líða eins og drottningum. Stuðn-
ingsmennimir sem mæta á alla leikina
eru ómetanlegir og án þeirra stæðum við
ekki þar sem við stöndum í dag.“
Hversu mikilvœgt er að þínu mati að
meistaraflokksleikmenn séu í tengslum
við yngri flokkana, þ.e. sem fyrirmyndir
og sýnilegar á leikjum í yngri flokkun-
um? „Ég tel það mjög mikilvægt að
tengslin séu til staðar. Hins vegar verðum
við líka að gefa því gaum að flestir, ef
ekki allir leikmenn meistaraflokks eru í
100% vinnu eða námi með boltanum og
það er ekki mikill aukatími sem gefst fyr-
ir utan þetta tvennt. Og ekki má gleyma
fjölskyldunni. Það væri kannski hægt að
ætlast til meira af leikmönnum ef það
44
Valsblaðið 2010