Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 45
væru bara atvinnumenn í liðinu. Nú tala
ég fyrir hönd kvennaflokksins þar sem ég
veit ekki hvernig samningamálin eru
karlamegin. En þeir ættu að taka okkur
stúlkurnar til fyrirmyndar þegar kemur
að ... tja öllu en sérstaklega félagslegum
verkefnum. Ég hef reyndar mikla trú á að
Freysi komi sterkur þar inn.“
Hefitr þú stundað aðrar íþróttagreinar
en fótbolta? „Ég er fyrrverandi landsliðs-
kona í borðtennis og spilaði tvenndarleik
með Guðmundi Stephensen þegar ég var
upp á mitt besta, við skulum hafa það
alveg á hreinu. Og ég tel að borðtennis-
grunnurinn hafi hjálpað mikið við upp-
byggingu á þeirri gríðarlegu tækni sem
ég bý yfir í dag. Annars átti ég mér aldrei
neinar meðvitaðar fyrirmyndir. En mér
fannst reyndar Laufey Ólafsdóttir alltaf
eina stelpan sem var eitthvað vit í þegar
ég var yngri því hún lék líka alltaf bara
við stráka eins og ég. Ég byrjaði mjög
ung að leika mér í fótbolta og það að
vera meðtekin í vinahópi bróður míns á
þeim tíma vegna fótboltahæfileika varð
til þess að ég vissi þá að ég var búin að
finna eitthvað sem kom mér áfram, gaf
mér tækifæri og ég var góð í því. Ég
valdi Val af því að fyrst Laufey Ólafs-
dóttir gat spilað með stelpum þá hlaut að
vera einhver von. Ég ætlaði að hætta í
fótbolta þegar ég náði ekki lengur að
halda í við strákana því mér fannst stelp-
ur glataðar í öllu. Skildi í raun aldrei af
hverju ég fæddist ekki bara strákur en sé
í dag að guð ætlaði mér stærri hluti en
það.“
Þrálát meiðsli
Fyrir nokkrum árum lenti Kristín í þrálát-
um meiðslum sem höfðu
mikil áhrif en það hvarfl-
aði aldrei á þessu tímabili
að gefast upp og hætta að
æfa fótbolta. Hún segir að
hægt sé að útskýra þessi
meiðsli sem röð óhappa. „Ég
byrjaði á því að fara í aðgerð á ristinni í
lok tímabils 2004 og bataferlið gekk
mjög illa og ég var mjög óþolinmóð og
vitlaus og byrjaði of snemma aftur og
aftur. Eftir að ég gat loksins byrjað að
æfa aftur í maí 2005 var ég búin að æfa í
3 vikur þegar ég lenti í bílslysi sem olli
bakmeiðslum. Og ég gerði þrotlausar til-
raunir til að byrja aftur 2005 og 2006, án
árangurs og það endaði með því að ég
fékk blóðtappa í maí 2007 og var frá út
tímabilið. 2008 byrjaði nú ekki vel en ég
meiddist á ristinni sem ég fór í aðgerðina
og gat ekki byrjað að æfa almennilega
fyrr en um mitt sumar. En ég náði í fyrsta
skipti í 3 ár að æfa heilt tímabil en það
hvarflaði aldrei að mér að hætta. En ég
þroskaðist mjög á þessum tíma og upp-
götvaði hversu tómlegt lífið er án fót-
bolta.“
Draumaafmælisveisla Vals
Hvernig myndir þú helst vilja halda upp
á aldarafinœli Vals á nœsta ári ef þú
fengir að ráða? „Ég og Stebbi Hilmars.
að syngja saman Valslög á risa-útisviði á
Vodafonevellinum og allir í Reykjavík
klæðast Valsfötum og Hlíðarendi troðinn
af Valsunnendum. Tveggja hæða útsýnis-
strætóar koma keyrandi með stelpurnar í
meistaraflokki kvenna að svæðinu, allir
hylla þær og henda rósum í þær (og
Freysa, Dodda, Orra og Óla) og maka-
klúbburinn í næstu rútu og meistara-
flokkur kvenna í
handboltanum líka
og Óskar Bjami. All-
ir eru á Valssvæðinu
og Jose Mourinho
mætir í Lollastúkuna
og vinkar mér í við-
laginu á Valsmenn
léttir í lund. Svo
hendi ég míkrafónin-
um í Stebba og leyfi
Sálinni að halda ball
og á leiðinni niður af
sviðinu gefur Óli
Stefáns mér fimmu
og segir „Kristín,
djöfull ertu góð
söngkona". Og það
byrja allir að syngja - Það geta ekki allir
verið gordjess! - Akkúrat svona myndi
ég halda upp á aldarafmælið ef ég mætti
ráða.“
Heilrœði frá Kristínu Ýr til ungra iðk-
enda í íþróttum. „Æfa betur og leggja
enn meira á sig en næsti maður. Hvíld og
matur er mikilvægt. Alltaf spila fyrir lið-
ið, ekki fyrir þig.“
Valsblaðið þakkar Kristínu Ýr Bjarna-
dóttur fyrir hressilegt viðtal og á henni er
að heyra að hún ætli að leika lengi áfram
með Valsliðinu í knattspymu og dreymir
jafnframt um að fá að leika meira með
landsliðinu. Hún á eflaust eftir að ilja
stuðningsmönnum áfram um hjartarætur
með krafti sínum og markaskorun í öll-
um regnbogans litum. Valsblaðið óskar
Kristínu og félögum hennar alls hins
besta á komandi keppnistímabili.
Kristín Ýr skorar eitt affjölmörgum
mörkum sumarsins, en hún hefur
fengið gullskóinn tvö síðustu tímabil
og segist œtla að halda ótrauð áfram.
Ýr markaskorari afguðs náð.
Valsblaðið 2010
45