Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 49
—
íslands- og deildarmeistarar Vals í handknattleik kvenna 2010. Efri röð frá vinstri: Ómar Ómarsson, Jóhannes Lange, Ágústa
Edda Björnsdóttir, Kolbrún Franklín, Katrín Andrésdóttir, Rebekka Rut Skúladóttir, Soffía Rut Gísladóttir, Sunneva Einarsdóttir,
Nína Kristín Björnsdóttir, íris Ásta Pétursdóttir, Stefán Arnarson, Konni, Valgeir Viðarson. Miðröðin: Guðný Jenný Ásmunds-
dóttir, Híldigunnur Einarsdóttir, Berglind íris Hansdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir, Arndís María
Erlingsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir. Fremst: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir.
menn fyrir síðasta tímabil. Nýir leikmenn
sem komu til okkur eru Annette Köbling
sem kom frá Gróttu og Sigríður Ólafs-
dóttir frá FH.
Á haustmánuðum tók liðið þátt í EHF
keppinni og spilaði þar á móti Luventa
frá Slóvakíu sem er sterkt atvinnumanna-
lið, liðið vann fyrri leikinn á heimavelli
með sex marka mun og seinni leikurinn
endaði með jafntefli sem þýddi að liðið
komst áfram. Næsti mótherjinn var Pýska
stórliðið Oldenburg, báðir leikirnir voru
spilaðir á heimavelli okkar, fyrri leikur-
inn tapaðist með níu marka mun sem var
allt of stór munur miðað við hvernig leik-
urinn þróaðist en stelpurnar snéru blaðinu
við í seinni leiknum og unnu góðan sig-
ur. Því miður datt liðið út vegna markam-
uns. Þjálfari Oldenburg hreyfst mjög
mikið að leik Valsliðsins og er búinn að
bjóða liðinu á mót í Þýskalandi með
fimm bestu liðinum þar í landi og þrem-
ur dönskum liðum næsta haust. Liðinu er
boðið að vera í viku hjá þeim og spila
síðan opnunarleik við Oldenburg í nýju
íþróttahúsi sem þeir eru að byggja. Þetta
boð er mikil viðurkenning fyrir stelpurn-
ar og klúbbinn frá svona sterku liði.
Þjálfari Valsliðsins er Stefán Arnarson og
er hann á sínu þriðja tímbili með liðið,
honum til aðstoðar eru, Jóhannes Lange,
Valgeir Viðarson og Viðar Halldórsson.
Meistaraflokkur karla
Leiktímabilið byrjaði vel og Valur vann
Hauka í Meistarakeppni HSÍ og fylgdi
sigrinum eftir með góðu hausti þar sem 1
umferðin gekk mjög vel og Valsmenn í
kringum toppsætið (eftir fyrstu 7 umferð-
irnar). Varnarleikurinn var mjög góður
og Hlynur Morthens nýr markvörður sem
kom frá Gróttu var frábær, reyndar yfir
allan veturinn og það kom engum á óvart
að hann var valinn besti leikmaður meit-
araflokks karla í Val að leiktímabili
loknu. 2. umferð reyndist Valsmönnum
erfið og var litla uppskera úr henni að fá,
þegar komið var að 3. umferðinni (leikn-
ar 3 umferðir í 8 liða deild) þá voru Vals-
menn tæpir að komast í 4-liða úrslita-
keppnina, miðað við spilamennsku og
stigafjölda. En frábær endasprettur gerði
það að verkum að Valsmenn enduðu í 2.
sæti í deildinni og ljóst var að Akureyri
yrðu andstæðingar okkar þar. Fyrsti leik-
urinn tapaðist á heimavelli og Akureyri í
lykilstöðu, en það þarf að vinna 2 sigra
til að komast í úrslitarimmuna. Erfiður
leikur beið Valsmanna á geysisterkum
heimavelli þeirra Akureyringa og var far-
ið á rútu norður með hóp af stuðnings-
mönnum. Frábær sigur vannst fyrir norð-
an í svakalegum leik og ekki var odda-
leikurinn minna spennandi þar sem
Valsmenn unnu í framlengingu. Ljóst var
að Valsmenn myndu mæta Haukum í
úrslitum og þar þurfti að vinna 3 leiki til
að landa stóra titlinum. Þessi úrslitavið-
ureign varð ein sú skemmtilegasta í
manna minnum og 4 leikurinn fór í fram-
lengingu og þar sigruðu Valsmenn og nú
var staðan orðin 2-2 og úrslitaleikur á
Ásvöllum. Uppselt var leikinn í Hafnar-
firðinum en sá leikur tapaðist því miður
og 2. sætið raunin og enn og aftur, Hauk-
arnir sem unnu titilinn.
Valsmenn enduðu einnig í 2. sæti í bik-
arkeppni HSÍ og þar unnu Haukar einnig
okkar menn, leikurinn var í járnum í 50
mín en Haukarnir voru sterkari á loka-
sprettinum líkt og í leiknum um íslands-
meistaratitilinn.
Margir leikmenn yfirgáfu Val eftir
tímabilið og þökkum við þeim kærlega
fyrir þeirra framlag. Sigfús Páll Sigfús-
son í Fram, Sigurður Eggertsson í Gróttu,
Baldvin Þorsteinsson á láni til FH, Gunn-
ar Ingi Jóhannsson, hættur, Ólafur Sigur-
jónsson í ÍR, Elvar Friðriksson, spilar í
Valsblaðið 2010
49