Valsblaðið - 01.05.2010, Page 50

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 50
Danmörku Fannar Þór Friðgeirsson, spil- ar í Þýskalandi, Arnór Þór Gunnarsson, spilar í Þýskalandi, Ingvar Arnason, spil- ar í Noregi, Sigfús Sigurðsson, spilar í Þýskalandi. Nýir leikmenn fyrir veturinn 2010-2011: Valdimar Fannar Þórsson frá HK, Anton Rúnarsson til baka úr láni hjá Gróttu, Finnur Ingi Stefánsson frá Gróttu, Sturla Asgeirsson frá Dusseldorf, Heiðar Aðalsteinsson frá Akureyri, Hjálmar Þór Arnarsson, lánaður í Gróttu, Einar Örn Guðmundsson frá Víkingi og Alexandr Jedic frá Moldovu. Júlíus Jónasson tók við þjálfun mfl. karla sl. vor af Óskari Bjarna Óskarssyni sem þjálfað hefur lið- ið undanfarin 7 ár. Júlíus er okkur Vals- mönnum að góðu kunnur, en hann lék um árabil með Val og svo á Spáni, í Frakklandi og Sviss. Júlíus þjálfaði ÍR við góðan orðstír í nokkur ár ásamt því að þjálfa íslenska kvennalandsliðið. Ósk- ar sneri í nýtt starf hjá Val. Óskar er yfir- þjálfari handknattleiksdeildar og þjálfar yngri flokka ásamt því að vera með sér- æfingar fyrir afreksflokka félagsins. Heimir Ríkarðsson aðstoðar Júlíus ásamt því að þjálfa 2. og 3. flokk félagsins. Lið- stjóri er hinn geðþekki Finnur Jóhanns- son, Sálfræðingur Erlendur Egilsson, sjúkraþjálfari og nuddari er Valgeir Við- arsson og Ingvar Sverrisson er liðslækn- ir. f lok nóvember var ákveðið að Júlíus skyldi hætta störfum eftir erfiða byrjun í Islandsmótinu en eingöngu einn sigur leit dagsins ljós í fyrstu átta umferðunum. Við liðinu taka Óskar Bjarni og Heimir Ríkarðsson, a.m.k. tímabundið. Stjórn handknattleiksdeildar Vals Stjórn handknattleiksdeildar vill þakka starfsmönnum Vals ánægjulegt samstarf á árinu. Þjálfurum, stuðningsmönnum, styrktaraðilum, foreldrum og öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem koma að starfinu, er þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Ekki síst hinum óvið- jafnanlegu bekkjarfélögum í heimaleikja- ráðinu sem gera umgjörðina á heima- leikjum eins glæsilega og hún er. Einnig viljum við þakka Guðna liðstjóra fyrir frábært starf í gegnum árin sem verður seint full þakkað. Asmundi Sveinsyni er þakkað fyrir sín störf fyrir hkd. Vals. Þá viljum við bjóða Arnar Friðgeirsson og Magnús Guðmundsson velkomna til starfa. Stjórn handknattleiksdeildar Vals starfsárið 2010-2011, er þannig skipuð: Sveinn Stefánsson, formaður Ómar Ómarsson, varaformaður Gunnar Þór Möller, gjaldkeri Bjarni Már Bjarnason, meðstjórnandi Gyða Jónsdóttir, meðstjórnandi Arnar Friðgeirsson, meðstjórnandi Magnús Guðmundsson, meðstjórnandi Yngni flokkar 8. flokkur karla 8. flokkur karla tók þátt í tveimur mótum í vetur, Akamótinu í Kópavoginum og Stjörnumótinu í mars. 4 lið tóku þátt í mótunum og stóðu drengirnir sig með miklum sóma. Margir voru að stíga sín fyrstu skref inni á handboltavellinum en allir skoruðu stórglæsileg mörk og tóku virkan þátt í vörninni. Þá virðast margir efnilegir markverðir vera í flokknum því sumir þeirra lokuðu hreinlega markinu í mörgum leikjum. Það voru um það bil 10 strákar í flokknum þegar handboltaver- tíðin hófst í haust en smám saman bættist í hópinn og þegar yfir lauk taldi flokkur- inn um 25 drengi. Við gerðum margt skemmtilegt á liðnum vetri. Spiluðum handbolta við foreldra okkar, héldum, jólaskemmtun og horfðum spenn't á nokkra leiki íslenska liðsins á Evrópu- meistaramótinu í handbolta. Það var haldið páskabingó þar sem allir fengu einhvern vinning og á síðustu æfingunni fórum við saman í keilu. Þjálfari: Ágústa Edda Björnsdóttir 7. flokkur karla 7. flokkur karla tók þátt í þremur mótum í vetur. Fyrsta mótið var í Framheimilinu í nóvember, annað mótið var í íþróttahús- um HK í febrúar og þriðja mótið á Sel- tjarnarnesi vorið 2010. 5-6 lið tóku þátt í þessum mótum og var árangurinn afar góður. Öll liðin unnu flesta sína leiki og voru til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Allir drengimir hafa sýnt miklar framfarir og er óhætt að segja að framtíð- in sé björt hjá handknattleiksdeild Vais verði haldið vel utan um þennan drengja- hóp í framtíðinni. Við gerðum okkur ýmislegt til skemmtunar í vetur. Við héldum jólaskemmtun þar sem farið var í Valsblaðið 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.