Valsblaðið - 01.05.2010, Page 64

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 64
Framtíðarfólk Nám: Ég er að klára Versló núna í vor. Kærasta: Nei, ég er á lausu! Hvað ætlar þú að verða: Draumurinn er atvinnumaður í fótbolta. Af hverju Valur? Af hverju færðu þér mjólk með kökunni en ekki vatn? Af því það er það besta sem er í boði. Það kom aldrei neitt annað til greina. Frægir Valsarar í fjölskyldunni: Hann faðir minn, Geir Sveinsson, gerði garð- inn frægan með Val og íslenska landslið- inu í handbolta. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í fótboltanum: Það er auðvitað þvílíkur plús fyrir mig sem íþróttamann að hafa jafn mikinn reynslubolta og pabba inni á heimilinu. Hann héfur hjálpað mér alveg gríðarlega mikið og ráðleggingar hans verða stór partur af því ef ég næ mark- miðum mínum. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni: Pabbi er held ég besti íþrótta- maðurinn í fjölskyldunni, þó að það verði bráðum „var“ - og þá auðvitað verð ég orðinn sá besti. Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: íslands- og bikarmeistari, dúxa Versló og verð keyptur til Arsenal fyrir metfé í íslenskri knattspyrnu svo að Valur þarf aldrei að hugsa um peninga aftur. Af hverju fótbolti: Þetta var alveg hrika- lega erfitt val á sínum tíma, þegar ég þurfti að velja á milli handboltans og fótboltans. Fótboltinn varð fyrir valinu og það voru nokkrar ástæður sem spiluðu inn í. Ég gat engan veginn valið eftir því hvort var skemmtilegra því báðar íþróttirnar em ekkert smá skemmtilegar. Ég fór því að skoða þetta frá öðmm vinkli og sá þá að fótboltinn hentaði betur og er ég mjög sátt- ur með þá ákvörðun þó að ég muni aldrei útiloka það að ég fari aftur í handboltann. Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Ég afrekaði nú kannski ekki margt í handboltanum, en spilaði þó nokkra meistaraflokksleiki fyrir Val og vann ein- hverja bikara í yngri flokkunum. Það var hrikalega erfitt að velja á milli handboltans og fótboltans Arnar Sveinn Geirsson er 19 ára og leikur fótbolta með mestaraflohki karla Eftirminnilegast úr boltanum: Eitt það eftirminnilegasta er klárlega markið sem ég skoraði á móti KR í Vesturbænum fyr- ir framan troðfullt Frostaskjól í fyrra, sem endaði svo á að vera sigurmarkið í leiknum. Síðan koma upp önnur atriði eins og fyrsti landsleikurinn, fyrsta mark- ið mitt fyrir Val' og fyrsti leikurinn fyrir Val. Hvernig var síðasta tímabil: Það var alls ekki eins slæmt og mér finnst umfjöllunin um það vera. Það voru auð- vitað miklar breytingar og menn kannski enn svolítið að átta sig á málum. Auðvit- að var árangurinn ekki ásættanlegur, en ég held að leikmenn innan liðsins hafi þroskast og orðið betri sem mun klárlega hjálpa okkur á komandi tímabili. Ein setning eftir tímabilið: Fínn undir- búningur fyrir 100 ára afmælisár stærsta félags á landinu. Hvernig gengur næsta sumar: Ég hef mikla trú á liðinu fyrir næsta sumar. Það er mikið í gangi í öllum klúbbnum á öll- um sviðum, félagið er að verða 100 ára og spenningurinn er mikill. Ég held að það muni nýtast hópnum öllum vel og þetta verði fantagott sumar. Besti stuðningsmaðurinn: Ég held að fyrir mig persónulega sé það litli bróðir minn, hann Vilhjálmur Geir. það gleður mig alltaf að sjá hann á leikjum hjá mér. Eftirminnilegasti þjálfarinn: Hingað til myndi ég segja að það sé Magni Fann- berg sem þjálfaði mig í 3. flokki. Hann hjálpaði mér alveg gríðarlega mikið að þroskast og verða betri leikmaður. Ég á honum mikið að þakka. Hvað varstu með marga þjálfara hjá Val í yngri flokkunum: Ef ég tel aðal- og aðstoðarþjálfara saman þá voru þeir ekki færri en 20. Fyndnasta atvik: Það var ekki mjög fyndið þá en eftir á er þetta frekar skond- ið. Þannig var það að við vorum að spila fyrsta leikinn okkar í fslandsmóti í Eyj- um þegar ég var í 3. flokki. Við komum til Eyja og unnum 9-0 þar sem ég skoraði þrennu. Þegar lítið var eftir af leiknum í stöðunni 9-0 fékk ég að líta rauða spjald- ið fyrir hefnibrot. Eftir leikinn komumst við síðan að því að ég átti að vera í banni í leiknum, eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik íslandsmótsins sumarið áður. Því var okkur dæmdur ósigur 3-0. Ég hef því fengið rautt spjald í leik þar sem ég átti að vera í banni, skoraði þrennu og við unnum 9-0 en töpuðum samt 3-0. Sem betur fer hefur maður þroskast aðeins í þessum spjaldamálum síðan. Stærsta stundin: Fyrsti landsleikurinn 64 Valsblaðið 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.