Valsblaðið - 01.05.2010, Page 67

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 67
araflokki 19 ára gamall. Matti fylgdi síð- an liðinu í 1. deildina og hélt tryggð við Val á þessu erfiða tímabili þegar iiðið féll þrisvar úr úrvalsdeildinni á næstu árum. „Það var skelfileg upplifun að falla með liðinu í fyrsta skipti um haustið 1999, en það féll eiginlega ekkert með okkur þetta sumar. Ég fylgdi síðan liðinu aftur upp um deild strax árið eftir og var hluti af liðinu í öll þrjú skiptin sem það féll um deild og var einnig með í að koma liðinu alltaf upp aftur. Þetta var mjög sérstakur tími og mér fannst liðið oft spila ágætan fótbolta á þessu tímabili en röð atvika varð stundum til þess að hlutirnir féllu ekki með okkur. Eitt skiptið vorum við t.d. í 2. sæti eftir fyrri umferðina en feng- um bara 2 stig í seinni umferðinni og féll- um um haustið. Þá kom upp einhvers konar panikástand og andlega hliðin brást, en við vorum samt hörkugóðir í fót- bolta, en það var bara ekki nóg. Mér finnst það sanna að maður var sannur Valsmaður að vera ekkert að skipta um lið á þessum tíma og við vorum nokkrir sem héldum tryggð við félagið allan tím- ann,“ segirMatti af einlægni. Stnaumhvörf þegar Willum kom 2004 Matti segir að ákveðin straumhvörf hafi orðið hjá félaginu þegar Willum Þór Þórsson tók við þjálfun liðsins eftir sum- arið 2004 þegar Val tókst í þriðja sinn úr 1. deildinni. Fyrsta tímabilið undir stjórn Willum vann liðið fjölda titla og hápunkt- urinn var 2005 þegar liðið varð bikar- nreistari eftir spennandi úrslitaleik á móti Fram. „Willum gerbreytti um áherslur, kom með mikinn kraft og lagði mikinn metnað í starfið, nokkrir nýir leikmenn komu til Vals og honum tókst að búa til sterka liðsheild og öll umgjörð var til fyr- irmyndar hjá félaginu. Ég átti frábært tímabil þetta ár og væntingarnar voru síðan miklar til næsta tímabils en það voru ákveðin vonbirgði að ná ekki að fylgja eftir góðu gengi en liðið var samt nokkuð gott þetta tímabil. Það verður að segjast eins og er að þessi tvö tímabil var FH með langbesta liðið á landinusegir Matti. FH heillar Eftir 2006 tímabilið þá langaði Matta að breyta til, enda hafði hann leik- ið allan sinn feril hjá Val og orðinn 26 ára. Það freistaði Matta þegar honum bauðst að ganga til liðs við íslandsmeist- ara FH. „Mér gekk mjög vel að aðlagast liðinu og var mjög vel tekið. Það var ákaflega sértakt að koma inn í klúbb- inn og upplifa stemninguna í liðinu og í stuðningsmönnum. Sértaklega þótti mér athyglisvert hversu þjálfararnir höfðu mikið svigrúm og ekki voru margir stjórnarmenn að skipta sér af liðinu. Einnig finnst mér athyglisvert hversu margir uppaldir leikmenn voru hjá liðinu, það er mikið lagt upp úr starfinu í yngri flokkunum og mikil tengsl eru á milli meistaraflokks og 2. og 3. flokks og þjálfunin er samrýmd eftir ákveðinni stefnu. Ég lék með þeim næstum í þrjú tímabil og náði að verða með þeim íslandsmeistari einu sinni og bikarmeist- ari einu sinni og þegar ég færði mig yfir í Val í fyrrasumar vorum við nánast búnir að tryggja okkur titilinn. Það var sérstök tilfinning að fylgjast með Val hampa íslandsmeistaratitlinum árið 2007, fyrsta árið mitt hjá FH og ég man eftir að hafa fengið alls konar meldingar frá félögum mínum í Val og stuðningsmönnum en auðvitað var svekkjandi að ná ekki að taka þátt í því ævintýri hjá Val. Það var samt minnisstæðast á því tímabili að ég náði að skora bæði mörk FH í bikarúr- slitaleik og tryggja þeim fyrsta bikar- meistaratitil frá upphafi. Ég þroskaðist mjög mikið sem leikmaður hjá FH og er þeim þakklátur fyrir tímann hjá þeim,“ segir Matti af einlægni. Aftur heim að Hlíðarenda 2009 „Það kitlaði mig að ganga aftur í Val þeg- ar félagið hafði samband, en ég ætlaði mér alltaf að koma einhvern tíma aftur heim. Það var mjög sérstakt að koma á Hlíðarenda þar sem ýmislegt gekk á aft- urfótunum og árangur langt undir vænt- ingum allra í félaginu. Persónulega fannst mér allt of mikið púður fara í alls konar pirring, tuð og neikvæðni og þá undanskil ég engan, hvorki leikmenn, þjálfara, stjórnarmenn eða stuðnings- menn. Það er ekki von til þess að góður Matthías Gudmimdsscm og Baldur lngimar Aðalsteinsson heilsa upp á leikmenn í 4.flokki'fyrir einn af skemmtilegustu leikjum sumarsins sem fórufram á Vodafonevellinum í sumar í3. og 4.fl. karla og kvenna. Fálkarnir sáu um að gera umgjörð leikjanna ógleymanlega. árangur náist þegar stemningin er ekki nægilega jákvæð í klúbbnum í heild. Þetta fannst mér sérstaklega áberandi eft- ir að vera nýkominn úr allt öðru umhverfi hjá FH. Mér finnst mikilvægt að Valur byrji nú á einhverju nýju tímabili, það gerist ekki betra tækifæri en að byrja eins á hundrað ára afmælinu. Félagið þarf að móta ákveðna stefnu, búa til jákvæða heild og allir þurfa að leggja sig fram til að betri árangur náist og þá er ég ekki að undanskilja neinn sem kemur að félaginu og suma leikmenn," segir Matti býsna ákveðið. Líst vel á uppbygginguna hjá Val Matta líst mjög vel á það sem er að ger- ast núna hjá karlaliðinu í Val, bæði nýja þjálfarateymið og leikmannahópinn. Hann telur að Kristján Guðmundsson sé mjög góður kostur sem þjálfari liðsins í þeirri uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað í karlaboltanum á Hlíðarenda og lið- ið þurfi að fara að leggja meiri áherslu á að spila fallegan fótbolta. „Við erum með kornungt lið, meðal- aldurinn er um 23 ár og ég finn fyrir svipuðum straumum og þegar Willum var að byrja. Síðan erum við með nokkra reynslubolta, Atla Svein og Bjössa og ég tel mig sjálfan þar með og það er nauð- synlegt fyrir okkur að taka á okkur ábyrgð. Ég trúi því líka að Freyr komi með jákvæðar áherslur úr kvennaboltan- um til að byggja upp sterkari liðsheild og við finnum strax fyrir því. Ég tel að það sé mikilvægara að hafa sterka liðsheild en að vera með bestu leikmennina og ég hef fulla trú á að Kristjáni, Frey og Bjössa takist þetta, enda hefur Freyr unn- ið allt með stelpunum á undanförnum árum og sömu lögmálin ættu að gilda bæði í karla- og kvennaboltanum. Hóp- urinn er byrjaður að halda fleiri fundi til að kynnast betur og rækta einnig félags- skapinn. Þeir sem spila fyrir Val verða að Valsblaðíð 2010 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.