Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 69
Það hefur alla tíð
runnið Valsarablóð
í æðum mínum
Marteinn Hngni Elíasson er 14 ára og leikur fótbolta
með 4. flokki og er handhafi Lollabikarsins
Marteinn Högni hefur æft fótbolta í fimm
og hálft ár með Val og segist hafa byrjað
hjá Val af því að fjölskylda hans séu harð-
ir Valsarar og að alla tíð hafi runnið Vals-
arablóð í æðum sínum. Hann segir að það
hafi verið rosalega mikill heiður að fá
Lollabikarinn á uppskeruhátíðinni í haust.
Stuðningur foreldra? „Ég hef fengið
mjög mikinn og góðan stuðning frá for-
eldrum mínum. Pabbi hefur mætt á nán-
ast alla leiki sem ég hef spilað síðan að
ég byrjaði að æfa og hefur verið öflugur
á hliðarlínunni. Mamma hefur mætt á
eins marga leiki og hún getur og systir
mín líka. Mér finnst stuðningur foreldar
mjög mikilvægur. Það eflir mann og
styrkir að hafa foreldra sína við bakið á
sér.“
Hvernig gekk ykkur í sumar? „Við
náðum markmiðinu okkar á íslands-
mótinu. Við hefðum getað staðið okkur
betur á Rey Cup mótinu en það kemur
bara næst, þannig að okkur gekk bara
frekar vel í sumar, vorum að vinna marga
leiki og sýndum miklar framfarir sem lið.
Hópurinn er góður, við náum vel saman
jafnt innan sem utan vallar og erum að
spila vel saman. Þjálfararnir eru frábærir.
Donni og Igor eru án efa þeir bestu sem
ég hef verið með í Val. Þeir eru með skýr
markmið, byggja vel upp liðsandann og
eru með mjög góðar æfingar. Þeir hafa
gert mig að betri leikmanni og hafa stað-
ið vel á bak við mig.“
Hverar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Fabregas í Arsenal ásamt
því að vera minn uppáhalds leikmaður.
Hann er góður leikmaður, gefur frábærar
sendingar, les leikina vel og er bara snill-
ingur í alla staði“
Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða
íþróttum almennt? „Ég tel að til þess að
ná langt í íþróttum skipti miklu máli að
æfa vel, setja sér raunsæ markmið og
stefna að þeim, passa að borða næringar-
ríkan mat og hafa trú á sjálfum sér. Þú
getur það sem þú ætlar þér og það er allt-
af hægt að bæta sig. Það helsta sem ég
myndi vilja bæta hjá mér væri styrkleiki,
sprengikraftur og hraði."
Hvers vegna fótbolti? „Ég á eldri systur
sem heitir Tara og þegar ég var lítill var
hún á fullu að æfa fótbolta. Hún var dug-
leg að taka mig út með sér í fótbolta og
naut þess að sóla mig upp úr skónum þeg-
ar ég var bara lítill pjakkur. Þannig að frá
því að frá fyrstu tíð hefur verið mikið um
fótbolta á mínu heimili. Þegar ég varð 9
ára fór ég á mínu fyrstu æfingu hjá Val og
eftir það var ekkert aftur snúið.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Það er að komast í atvinnumennsku og
geta öðlast góða menntun samhliða því.“
Hvernig fínnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val í fót-
bolta? „Fá fleiri krakka í félagið til að
efla samkeppni. Mér finnst mikilvægt að
hafa góða þjálfara."
Telur þú að meistaraflokkur Vals í
karlafótbolta eigi eftir að ná titlum á
næsta tímabili? „Ég hef trú á þeim. Það
getur allt gerst í fótboltanum. Það eru
margir efnilegir leikmenn í yngri flokk-
unum sem koma örugglega sterkir inn.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Elías, pabbi minn er auðvit-
að gömul handboltastjarna. Hann var val-
inn besti markvörður mótsins á Norður-
landamótinu 1983.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson og hann stofnaði Val
11. maí 1911.“
Hvað finnst þér að Valur eigi að gera til
að fagna 100 ára afmælinu?„Mér finnst
að það ætti að vera svona Stjörnuleikur
með gömlum Völsurum, gamlir vs. ungir.
Enda síðan daginn á hamborgaraveislu.“
Valsblaðlð 1941
BANNAÐ AÐ ÆFA
Árið 1941 var skólanemendum óheimilt að stunda íþróttaæfingar í félögum, þann
tíma árs, sem skólar störfuðu, nema með sérstöku leyfi skólastjóra.
Valsblaðlð 1958
Á MORGUN SEGIR SÁ LATI
Á vorin eiga menn að leika sér, það er eðli lífveranna. Gamlir vagnhestar taka á
sprett og bregða á leik, þegar þeir koma út í vorið, og ungur maður ætti ekki síður
að finna þetta. Leikfimi á að æfa allan veturinn og svo byrja að leika sér úti í marz.
Það er eðlilegast að komast í þjálfun á vorin, það er tími gróandans. Ef það er ekki
hægt, komast menn aldrei í æfingu.
Maður, sem er ekki í æfingu á haustin, geymir það til áramóta að byrja, og svo
geymir hann það lengur ... og lengur.
Grímar Jónsson
Valsblaðið 2010
69