Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 74
1 p í 1 ■Tí t i í * rTTiMi ■ i 11 t í
UJ ■ U.H U11 [ M
Pála Marie Einarsdóttir gekk til liðs við Val
árið 2002 og kefnr verið hluti af sigursælu
fátboltaliði og unnið 10 stára titla með Val, hefur
Eftir Guðna Olgeinsson
knattspymu og hafði Pála ekki áhuga að
taka þátt í því. Hún ákvað að ganga til liðs
við Val og ástæður þess voru m.a. að hún
þekkti flestar stelpumar úr Val úr yngri
landsliðunum og einnig fannst henni fínt
að spila áfram í rauðum búningum. Síðan
þá hefur Pála nánast leikið alla leiki með
Val. Markmið hennar á næsta tímabili er
að spila alla Ieiki og vinna þá alla, verða
betri og hjálpa ungum leikmönnum að
stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki.
Hvernig hefur þér liðið hjá Val? „Mér
hefur liðið stórkostlega, frábærlega vel
enda árangurinn með eindæmum góður.
Stærstu stundirnar eru að sjálfsögðu þeg-
ar bikararnir mínir 10 hafa farið á loft.
Það er alltaf jafn gaman að vinna titla,
titlar eru verðlaun fyrir margar æfingar
og þrotlausa vinnu og alltaf gaman að fá
viðurkenningu fyrir allt erfiðið. Fyrsti
íslandsmeistaratitillinn 2004 er eftir-
minnilegur, fyrsti fslandsmeistaratitill
Vals í 15 ár og minn fyrsti, yndislega
gaman. Bikarmeistaratitillinn 2006 þar
sem við unnum mjög gott lið Breiðabliks
í vítaspyrnukeppni stendur einnig upp úr
í minningunni. Ég er í fótbolta fyrir
stundir eins og þessar og þessi augnablik
gleymast ekki. Önnur lið halda okkur á
tánum, það langar öll lið að sjá okkur
tapa og það kveikir í okkur. Við þekkjum
ekki annað en að vilja vinna. Það væri
draumur að vinna tvöfalt aftur á næsta
ári, þriðja árið í röð, Valur setur alltaf
háleit markmið og reynir að ná þeim.“
Hver er að þínu mati Iykillinn á bak
við þessa miklu velgengni? „Það þarf
einbeittan vilja, endalausan metnað, gæði
á æfingum, hungur í sigra, góðan þjálfara
og góðan hóp. Lykillinn að velgengni
síðustu ár er hópurinn að mínu mati, frá-
bærir einstaklingar sem spila fyrir liðið,
ekki sjálfa sig. Við vitum hvað þarf til að
ná árangri og verðum ekki saddar.“
sex sinnum orðið íslandsmeistari og fjárum
sinnum bikarmeistari. Hún er ein af kjölfestunum
í Valsliðlnu en hefur einnig lent í mátlæti
Pála Marie Einarsdóttir byrjaði 10 ára að
æfa knattspymu með Haukum í Hafnar-
fírði en stundaði samhliða frjálsar íþróttir
með góðum árangri. Hún varð á sínum
yngri árum t.d. íslandsmeistari í hástökki
og hefði getað náð langt á þeim vettvangi.
Hún ákvað 14 ára að einbeita sér að knatt-
spyrnu og lék það sama ár fyrsta meistara-
flokksleik sinn með Haukum en lék þá
einnig í 2. og 3. flokki félagsins. Pála lék
fjölda landsleikja með yngri landsliðum
Islands en hefur ekki fengið mörg tæki-
færi með A iandsliðinu. Árið 2002 ákváðu
Haukar og Þróttur að sameinast um lið í
Hvers vegna fótbolti? „Eldri bróður
minn var rosa góður í fótbolta og fékk ég
stundum að fara með honum og strákun-
um þegar ég var yngri, ætli áhuginn hafi
ekki kviknað þá. Annars byrjaði ég ekki
að æfa fótbolta fyrr en 10 ára. Ég æfði
fimleika í nokkur ár en fór svo að æfa
frjálsar, varð t.d. íslandmeistari í hástökki
og var þó nokkuð lunkin í ýmsum grein-
um, enda með góð frjálsíþróttagen frá
foreldrum mínum. Foreldrar mínir eru
bestu stuðningsmenn í heimi, þau hafa
séð flesta leiki sem ég hef spilað og það
74
Valsblaðið 2010