Valsblaðið - 01.05.2010, Side 83
líst t.d. mjög vel á nýja skipulagið í
yngstu flokkunum þar sem iðkendur eru
einu sinni í viku að æfa allar boltagrein-
arnar. Krakkarnir hafa bara gott af því að
kynnast fleiri greinum og fjölbreytni er
af hinu góða. Þar kynnast krakkarnir
einnig öðrum krökkum og mér finnst að
það eigi að þróa þetta áfram alveg fram
undir unglingsárin. Síðan taka Ieikmenn
sjálfir ákvörðun á unglingsárum hvaða
fþróttagrein verður fyrir valinu áfram en
við eigum að hvetja til og liðka fyrir fjöl-
breytni og það á alls ekki að vera tog-
streita á milli deilda og íþróttagreina,
heldur samvinna. Þetta er félagið okkar.“
Bestu vinkonur og kjarni með Sossu í
Val. Frá vinstri: Asgerður H. Ingibergs-
dóttir, Kristbjörg H. Ingadóttir, Rósa
Júlía Steinþórsdóttir, Sojfía
Amundadóttir, Helga Ósk Hannesdóttir
og Erla Sigurbjartsdóttir. Þetta eru
gullin mín í lífinu. Vinkonur sem standa
með manni í gegnum súrt og scett. Við
hittumst einu sinni í mánuði og stundum
með mökum og börnum. Gríðarlega
samrýmdur hópur sem er búinn að fara
saman til útlanda einu sinni á ári og er
alltafað gera eitthvað saman.
Draumup Sossu um
allsherjaruppskeruhátíð
Sossa hefur ákveðnar skoðanir
þegar kemur að skipulagi upp-
skeruhátíða hjá knattspyrnu-
deild og henni finnst að nýta megi þær
betur fyrir alla félagsmenn. „Það er hald-
in flott uppskeruhátíð fyrir yngri flokka
félagins en mér finnst að uppskeruhátíð
meistaraflokkanna eigi að vera allsherj-
arhátíð, ekki eingöngu fyrir meistara-
flokkana hér og nú, heldur einnig fyrir
gamla leikmenn, félagsmenn, stuðnings-
menn, sjálfboðaliða félagsins og starfs-
menn, þar með talið þjálfara. Með þessu
móti myndu kynni milli leikmanna og
félagsmanna styrkjast og það væri virki-
lega gaman að sjá svona uppskeruhátíð
verða að veruleika. Eins þarf að sinna
þjálfurum félagslega til að þjappa hópn-
um saman.“
Nýtur sín best sem pjáltari yngri
flokka
Sossa verður áfram þjálfari 3. fl. kvenna
hjá Val á næsta tímabili og þrátt fyrir að
hún sé komin með hluta af EUFA A þjálf-
aragráðu þá stefnir hún áfram að því að
þjálfa yngri flokka. „Mér finnst mjög
gaman að vinna með unglingum og
skemmtilegast er að þjálfa 3. og 4.
flokka, en á ferlinum hef ég þjálfað 2. fl.
niður í 6. fl. Ég hef alveg eins áhuga á
því að þjálfa strákaflokka og skemmti-
legast að þjálfa 11 manna bolta á stórum
velli. Ég segi hreint út að ég stefni ekki á
að þjálfa meistaraflokka. Ég nýt þess að
byggja upp og kenna unglingum fótbolta
og allt sem tengist honumsegir Sossa
sannfærandi.
Vil sjá allar deildir í Val dafna
„Mér finnst að við ættum að hjálpast að í
félaginu að láta körfuna dafna aðeins bet-
ur og að meginmarkmiðið hjá félaginu
ætti að vera að styrkja þessar þrjár bolta-
deildir í stað þess að fjölga deildum eða
dreifa kröftum á fleiri íþróttagreinar. Mér
Virkjum fleiri Valsmenn í störf
fyrir félagið
„Það verða ekki allir leikmenn A lands-
liðsmenn í fótbolta, það verða ekki allir
leikmenn meistaraflokksleikmenn en það
geta allir tekið þátt, það er t.d. hægt að
vera Valsari, dómari, þjálfari, stuðnings-
maður, í stjórnum, foreldrafélagi eða alls
konar sjálfboðastarfi fyrir félagið. Sér-
staklega finnst mér að það eigi að reyna
að fá eldri iðkendur til að mæta á heima-
leiki og koma á Hlíðarenda bæði til að
fylgjast með keppnisliðum og ekki síður
til að hittast og rækta félagsskapinn. Það
þarf að vinna í því að finna leikmönnum
sem eru að hætta'i hvort sem það er í
meistaraflokki eða öðrum flokkum verk-
efni hjá félaginu. Það eru allt of margir
leikmenn sem hverfa alveg og láta aldrei
sjá sig á Hlíðarenda. Svo þarf að virkja
alla þessa frábæru foreldra sem eru hjá
Val og mætti virkja þá áfram í ýmis sjálf-
boðaverkefni en oftast hverfa foreldramir
líka um leið og börnin þeirra hætta að æfa
hjá félaginu. Það er of lítill sjálfboðaliða-
kjarni sem starfar í kringum félagið og
það er hætt við að þeir hverfi líka á braut
ef verkefnin verða of íþyngjandi.“
Sossa er menntaður leik- og grunn-
skólakennari með BA í táknmálsfræðum
og vinnur með elstu börnin á leikskólan-
um Sólborg í Vesturhlíðinni. Fyrir fjórum
árum byrjaði hún á því að ganga með
hópinn einu sinni í viku niður í Vals-
heimili og þar fengu börnin að æfa.
„Þetta spurðist út og núna mæta 4 eða 5
leikskólar í hverfinu einu sinni í íþrótta-
tíma í Valsheimilið og þetta eru fyrstu
kynni margra ungra krakka af Val. Ég er
mjög upptekinn af því að búa til nýja
leikmenn og laða nýja iðkendur til félags-
ins, sem fá að njóta sín í markvissu
íþróttauppeldi hjá okkur,“ segir Sossa að
lokum og er þetta gott dæmi um hversu
annt henni er um íþróttafélagið sitt sem
hún hefur tilheyrt frá 10 ára aldri.
Valsblaðið þakkar Sossu fyrir einlægt
viðtal þar sem hún veitir innsýn í farsæl-
an og langan fótboltaferil hjá Val og jafn-
framt einstaka sýn á vinnubrögð hennar
sem þjálfara hjá yngri flokkum Vals. Er
henni óskað velfarnaðar í áframhaldandi
störfum sínum fyrir félagið.
Valsblaðið 2010
83