Valsblaðið - 01.05.2010, Page 100
13
ísl°ndsbanki
Nám: íþróttabraut í FB.
Kærasta: Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Hvað ætlar þú að verða: Kartöflubóndi
í Ohio State.
Af hverju Valur? Það hentaði bara ágæt-
lega, svo hefur þessi höll og þessar
aðstæður ágætis aðdráttarafl.
Hjá hvaða liðum hefur þú verið í
körfubolta: Kormák frá Hvammstanga.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Ég
sjálfur.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
körfuboltanum: Frábærlega. Ekki nóg
með það að pabbi hafi elt mig út um allt
land heldur hefur hann farið tvisvar með
mér til Svíþjóðar með landsliðinu.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða: KR-ingur.
Af hverju körfubolti: Af því ég er svo
stór. Og kannski af því að strákarnir sem
ég var að spila street ball við sögðu mér
að fara að æfa svo ég gæti lært reglurnar
(skrefaði víst aðeins of mikið).
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Sigurvegari á unglingalandsmóti í kúlu-
varpi.
Eftirminnilegast úr boltanum: Norður-
landameistari með U91 liðinu, tvisvar.
Hvernig var síðasta tímabii: Ekki nógu
gott.
Ein setning eftir tímabilið: Ætla að gera
betur og segja eitt orð: vonbrigði.
Hvernig gengur í vetur: Eftir 0-2 run
hefur aðeins birt til hjá okkur.
Náið þið að komast í úrvaisdeildina í
vor: Annað er metnaðarleysi.
Besti stuðningsmaðurinn: Faðir og svo
kemur litli frændi minn hann Maríus
sterkur inn.
Skemmtilegustu mistök: Þegar Ingi Þór
landsliðsþjálfarinn minn sendi mér sms
Framtíðarfólk
Það vantar allan
pung í strákana í
körfunni hjá Val
Þorgrímur Guðnl Björnsson er 19 ára og
leikur körfubolta með meistaraflokki
„hæð?“ og ég svaraði „ 4. hæð til hægri“
þarna var hann greinilega að spyrja um
hversu hávaxinn ég væri en mér tókst að
breyta þessu í á hvaða hæð ég byggi.
Erfiðustu samherjarnir: Sigmar Egil-
son, ég vinn hann samt alltaf í lonl.
Erfiðustu mótherjarnir: Þessir sem
maður tapar fyrir.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: NBA live
2002. Þar lærði maður nú nokkur move.
Fyndnasta atvik: Þegar ég hélt afmælið
mitt á BB (bæjarins bestu) og bauð öllum
af vinalistanum mínum á facebook en
einungis 12 sáu sér fært að líta við. Vina-
listi minn taldi um og yfir 500 mans á
þeim tíma.
Stærsta stundin: Þegar ég sá Pétur Guð-
'mundsson fyrst.
AthyglisVerðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: No comment, til
að halda kærustunni góðri.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Hörður Hreiðars
og Bjöggi deila þeim titli. Samt væri
alveg hægt að velja Snorra eða Pétur.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í
körfubolta hjá Val: Stelpurnar eru að
gera mjög flotta hluti. Það vantar hins
vegar allan pung í strákana. Mér finnst
samt jákvætt að ég skuli ekki vera yngst-
ur lengur í meistaraflokknum. Takk
Benzi.
Fleygustu orð: Gad Demit!
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Hneppt frá buxunum, liggjandi sultuslak-
ur í LAZY BOY á aðfangadag starandi á
jólapakkana eftir jólamatinn hjá mömmu.
Hvaða setningu notarðu oftast: Bara ef
það sché kalt.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Þegar Krissi Haff segir við
mig að ég sé frábær og hann er virkilega
að meina það.
Fullkomið laugardagskvöld: Popp og
kók yfir breskum sakamálaþætti með
kærustunni.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Ryan Giggs,
Hakeem Olajuwon.
Draumur um atvinnumennsku í körfu-
bolta: Sem mun rætast.
Landsliðsdraumar þínir: Hef fengið
góðan skammt af unglingalandsliðsleikj-
um og mann þyrstir í að komast í a-
landsliðið því tíminn með 91 strákunum
var einn sá besti í mínu lífi.
Besti söngvari: Jay-Z.
Besta hljómsveit: Coldplay.
Besta bíómynd: Ace Ventura classic.
Besta bók: Harry Potter serían.
Besta lag: Mest spilaða lagið í Itunes hjá
mér er Fireflies með Owl city.
Uppáhaldsvefsíðan: karfan.is og fot-
bolti.net, annars er skemmtileg lesning í
nbaisland.blogspot.com.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum: Man
Utd.
Uppáhalds erlenda körfuboltafélagið:
Mig langar mest að segja Oklahoma City
Thunder, er mikið að meta Kevin Durant.
Eftir hverju sérðu mest: Lífið er allt of
stutt til að iðrast eitthvers.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Fyndinn, sætur, stæltur og skemmtilegur.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Gera Val að keisaraveldi og
krýna sjálfan mig keisara.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Frábær en guð minn almáttugur,
það er ekkert leyndarmál að gólfin eru
oft svo skítug að það er varla mönnum
bjóðandi.
Hvað finnst þér að eigi að gera til að
halda upp á 100 ára afmæli Vals 2011:
Kósý keilupartý í Öskjuhlíðinni og auð-
vitað með pomp og prakt á Hlíðarenda
með allskonar húllumhæ.
100
Valsblaðið 2010