Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 106
Eftir Þónarin Björnsson
guðfræðing
Aðdragandinn
vorið 1911
að stofnun Vals
í tilefni aldarafmælis Vals á næsla ári
Upphaf knattspyrnuiðkunar á íslandi er
almennt rakin til skoska prentarans Jam-
es B. Fergusson sem hóf vinnu hjá ísa-
foldarpentsmiðju árið 1895. Hann tók að
standa fyrir reglubundnum knattspyrnu-
æfingum á óruddu svæði suðvestan
gamla kirkjugarðarins við Suðurgötu,
gjarnan nefnt Melar. Meðal þátttakenda
var Olafur Rósenkranz sem þá kenndi
íþróttir og leikfimi við Latínuskólann í
Reykjavík (nú MR).
Árið 1899 stofnuðu nokkrir reykvískir
piltar með sér fótboltafélag sem löngu
síöar var nefnt Knattspyrnufélag Reykja-
víkur (KR). Færri vita að félag þetta var í
júnímánuði 1900 beinlfnis innlimað í
KFUM í Reykjavík. Félagið tók þá upp
nafnið „Fótboltafjelag Kristilegs ung-
lingafjelags", samþykkti félagslög og
starfaði af þrótti um sumarið. Séra Frið-
rik Friðriksson lagði þessu félagi marg-
víslegt lið og Ólafur Rósenkranz var pilt-
unum innan handar við æfingar.1
Ymsir ytri erfiðleikar urðu þess vald-
andi að umrætt fótboltafélag flosnaði
fljótlega frá KFUM og tók í raun ekki að
braggast á ný fyrr en ný íþróttafélög á
borð við ÍR, Fram og Víking fóru að láta
að sér kveða um og eftir 1908. í kjölfarið
jókst áhugi í Reykjavík á knattspyrnu
verulega og svo sem vænta mátti smitaði
hann sér í raðir ungra pilta sem tóku þátt
í starfi unglingadeildar (UD) KFUM. Það
varð upphaf þess að Valur hóf sig til
flugs frá húsi KFUM við Amtmannsstíg.
Knattleikni ot| brotnar rúður við
Amtmannsstig
I kringum 1910 fór að verða vinsælt að
taka með sér einhverja tuðru á fundi í
KFUM. 1 portinu á bak við hús félagsins
við Amtmannsstíg sýndu menn gjarnan
listir sínar fyrir eða eftir fundi og þótti
leiðtoginn Loftur Guðmundsson áberandi
liprastur í knattleikninni. Einn af félögum
Lofts í KFUM, Hallur Þorleifsson, lýsir
aðdraganda þessarar iðju svo:
Astœðan til þess að við fórum að
sparka knetti í KFUM-portinu mun
vera sit að Vestur-íslendingur að
nafni Ingólfur kom hingað, og hafði
með sérfótknött, sem við fengum að
nota, og þar með höfðum við fengið
bakteríuna í okkur}
Vorið 1911 urðu nokkur tímamót í knatt-
fiminni þegar enn einn leiðtoginn í
KFUM, Guðbjörn Guðmundsson, hafði
fjárfest í alvöru fótbolta og tók hann með
sér á fundi. Guðbjörn, sem var á 17. ald-
ursári, vann um þær mundir í ísafoldar-
prentsmiðju en á skrifstofunni þar starf-
aði einnig Ólafur Rósenkranz leikfimis-
kennari. Við gefum Guðbirni orðið:
Eitt sinn bar það við, að við Ólafur
vorum að taka til í herbergi einu í
prentsmiðjunni, en íþessu herbergi
var þá geymt skrifborð Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Þegar við vorum að
laga til í kringum borðið og undir
því, kom alt í einu fótknöttur veltandi
undan borðinu. Atti Ólafur knöttinn,
og var hann að vísu allslitinn, en þó
sœmilegur?
Þennan bolta falaði Guðbjörn til kaups
og greiddi fyrir hann heilar tvær krónur
að eigin sögn. Ekki dró hinn nýkeypti
bolti úr áhuga piltanna í KFUM á spark-
inu í portinu enda var hann bæði með-
færilegri og skoppaði betur en tuðrurnar
sem menn höfðu fram að því gert sér að
góðu. Á hinn bóginn var knattleiknin
ekki ætíð í réttu hlutfalli við kappsemina
og sú náttúra boltans að skoppa hafði
brátt dýrkeyptar afleiðingar í för með sér.
Af og til brotnuðu rúður í félagshúsinu
og þurfti þá að aura saman í nýjar rúður
og setja þær í rammann á ný. Kom það
oft í hlut Filippusar Guðmundssonar, síð-
ar múrarameistara. Einu þessara atvika
lýsir Filippus svo:
Til dœmis um spellvirki þeirra félaga
[úr UD KFUM] má nefita, að eitt.
sinn, er Hans, uppeldissonur síra
Friðriks Friðrikssonar, var að matast
við eldhúsborðið á 1. hœð hússins,
vissi hann ekki fyrri til en knöttur
þeirra kom þjótandi gegnum
gluggann og glerbrotunum rigndi
’ yfir matinn?
Fdtboltafálag KFUM stofnað - með
leyfi séra Friðriks
Svo sem við var að búast veitti séra Frið-
rik Friðriksson piltunum tiltal þegar
rúðubrot gerðust tíð í portinu við Amt-
Húts KFUM við Amtmannsstíg sem tekið
var í nötkun árið 1907.1 því var stofn-
fundur Vals haldinn í maí 1911 og í
portinu við húsið æfðu menn fyrstu til-
þrifin í knattleikni með misjöfnum
árangri.
Valsblaðið 2010