Valsblaðið - 01.05.2010, Page 112

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 112
Valshópurinn og gestgjafar frá IA á íþróttaljósmyndasýningunni Á vegum fulltrúaráðs Vals er unnið mik- ið félagslegt starf sem er að flestu leyti til fyrirmyndar. Yfir veturinn eru mánað- arlega haldnir fundir þar sem góðir gestir koma í heimsókn, s.s. formenn íþrótta- deilda Vals og þjálfarar sem gera grein fyrir starfinu í meistara- og yngri flokk- um þeirra iþróttagreina sem stundaðar eru innan Vals. Fulltrúaráðið gengst fyrir skákmóti Vals, bridgemóti og búið er að endurvekja golfmót Vals með glæsibrag. Þá hefur að undirlagi fulltrúaráðsins ver- ið komið á fót minjanefnd Vals og fleira er á prjónunum. Laugardaginn 2. okt. sl. lagði hópur Valsmanna land undir fót og hélt til Akra- ness. Ferðin var skipulögð af formanni fulltrúaráðs Vals, félagsmálatröllinu Hall- dóri Einarssyni. Einn aðal tilgangur ferð- arinnar var að gefa minjanefnd Vals tæki- færi til að skoða tvær sýningar á Akranesi sem tengjast starfi nefndarinnar, en það er eins og nafnið gefur til kynna varðveisla á myndum, munum og minjum sem tengj- ast sögu Vals. Öðrum félögum í fulltrúa- ráðinu var og boðin þátttaka í ferðinni. Troðfull rúta, að vísu lítil, lagði af stað frá Valsheimilinu að Hlíðarenda, vel fyrir hádegi á fallegum degi. Ákveðið var að aka Hvalfjörðinn sem var vel til fundið því eftir tilkomu Hvalfjarðarganga fara menn æ sjaldnar um þennan fallega fjörð. Sá sem þessar línur ritar á þó blendnar minningar um Hvalfjörðinn. Bílveiki bernskuáranna kom upp í hugann, bæði á leiðinni í Vatnaskóg og í leiki með Val á Akranesi þar sem maður var stundum ekki búinn að jafna sig af bílveikinni fyrr en í sturtunni eftir leik. Og þá var heim- ferðin framundan. Fyrsta stopp á Akranesi var á fallegu heimili Haraldar Sturlaugssonar og frú Ingibjargar Pálmadóttur. í húsinu er fjöldi muna og mynda sem tengjast sögu HB (Haraldar Böðvarssonar). Þetta magnaða safn sýnir vel þróun sjávarút- vegs á Islandi, einkum á Akranesi og í Sandgerði í 100 ár. Það var vel til fundið að hefja heimsóknina á þessum stað; móttökur þeirra heiðurshjóna Haraldar og Ingibjargar voru einstakar. Þau voru bæði hlý og skemmtileg og veitingar góðar. Við þökkuðum fyrir okkur að sið Valsmanna og þar var þáttur Lalla Lofts. mestur og bestur. Hann gerði sér lítið fyr- ir og söng til frú Ingibjargar, „Besame mucho“ með þvflfkum bravör að betur verður ekki gert um hádegi á laugardegi, innanhúss, án atrennu og að viðstöddu fjölmenni. Næst lá leið okkar á magnaða íþrótta- ljósmyndasýningu ÍA sem Haraldur og þeir feðgar Helgi Daníelsson og Friðþjóf- ur Heigason eiga mestan heiður af að koma upp. Þar kennir margra grasa og gaman að sjá hve mikla vinnu Skaga- menn hafa lagt í að finna gamlar myndir og skrásetja nöfn þeirra sem á myndun- um eru. Sýning þessi er til mikillar fyrir- myndar og aðstandendum til sóma. Á sýningarstaðnum var talsverður hópur Skagamanna sem heiðruðu okkur Vals- menn með nærveru sinni í tilefni heim- sóknarínnar. Meðal annarra voru á staðn- um stórspilararnir Ríkharður Jónsson, Guðjón Finnbogason, Helgi Björgvins- son, Þröstur Stefánsson, Jón Gunnlaugs- son, Matthías Hallgrímsson (íslands- meistari með Val 1980) og Helgi Daní- elsson, Skagamaðurinn með Valshjartað. Veitingar voru til fyrirmyndar og að lok- inni stuttri ræðu Halla Sturlaugs., þakk- aði Dóri Einars. fyrir okkur og að sjálf- sögðu sungum við Valsmenn léttir í lund fyrir gestgjafa okkar og síðan tóku menn höndum saman og sungu Kátir voru karl- ar að hætti hússins, Valsmenn og Skaga- menn arm í arm, andstæðingar á velli en bræður í boltanum. Ógleymanleg stund. Síðasta stopp heimsóknarinnar var við Iþróttasafn Islands sem er til húsa á Safn- asvæðinu Görðum á Akranesi. Þar röltu menn um, skoðuðu minjasafnið og rifj- uðu upp íþróttasöguna. Mesta athygli vöktu fótspor í gólfinu sem sýna magnað þrístökk Vilhjálms Einarssonar frá Ólympíuleikunum í Melbourne þar sem kappinn setti Ólympíumet, 16.26 m sem stóð í 1-2 klst. og tryggði honum silfur- verðlaun á ÓL. Að lokinni skoðun á þessu merka safni fengu menn sér súpu á veitingastað Safnasvæðisins og svo þakkaði formaður fulltrúaráðsins Skagamönnum enn einu sinni fyrir aldeilis frábærar móttökur og að beiðni formanns kvaddi undirritaður Akranes með söng; „Tondeleyo“ eftir Valsmanninn Sigfús Halldórsson og við- staddir tóku viljann fyrir verkið. Takk fyrir það. Heimferðin var tíðindalítil og ferðalok tímanlega fyrir kvöldmat. Eftir situr minning um ánægjulegan dag og ég þakka ferðafélögunum fyrir samveruna og Skagamönnum fyrir ógleymanlegar móttökur, vinsemd og hlýju. Reykjavík á aðventu 2010, með íþrótta- kveðju Hörður Hilmarsson, Fulltrúaráði Vals 112 Valsblaðið 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.