Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 113
Agnar Smári Jónsson er 16 ára og
leikur handbolta meó 3. flokki
pabbarnir þeir Jón Halldórsson og Jón S.
Helgason, sá fyrrnefndi var eitthvað í
handboltanum í Val en hélt sér síðan
frekar við þjálfunina og þjálfaði marga
þar, t.d. Snorra Stein og Markús Mána og
marga fleiri kappa, síðan þjálfaði hann
mig og hina strákana í 3 ár. Sá síðar-
nefndi var í fótbolta og vann þar t.d.
frægan sigur á KA í mjólkurbikarnum, .
og var einnig formaður knattspyrnudeild-
ar Vals eitt sinn.“
Hver stofnaði Val og hvenær?„Séra
Friðrik Friðriksson 11. maí 1911.“
Hvað finnst þér að Valur eigi að gera
til að fagna 100 ára afmælinu? „Mér
finnst að það eigi að gera eitthvað stórt
og mikið úr afmælisdeginum, hafa t.d.
leiki þar sem gamlar kempur mæta í fót-
bolta, handbolta og körfubolta og hafa
síðan gleðskap og fjölskylduskemmtun
og einnig vinna alla titla.“
Agnar Smári hefur æft handbolta með
Val í 9 ár og hefur að eigin sögn nánast
búið mestmegnis í Valsheimilinu þar sem
pabbi hans var alltaf að þjálfa í Vals-
heimilinu.
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val? „Mér
finnst að það mætti oftar koma gesta-
þjálfarar til yngri flokkana, t.d. fá ein-
hvern frægan eða svoleiðis, það mikil-
vægasta fyrir mig í yngri flokka þjálfun
er agi og mikill stuðningur frá þjálfara og
utanaðkomandi og fá góðan grunn og
jákvæða þjálfara."
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum? „Ég hef
fengið endalausan stuðning frá foreldrum
mínum, þau hafa stutt mig í gegnum heil-
an helling, stuðningur frá foreldrum er
hrikalega mikilvægur sérstaklega þegar
maður er yngri því þá er maður með svo
lítið sjálfstraust og þá þurfa foreldrar
stundum að hjálpa manni.“
Hvernig gengur ykkur í vetur í hand-
boltanum? „Okkur gengur frábærlega,
erum í 1. deild, hópurinn okkar er frábær
allir eru góðir vinir og ég þori alveg að
fara með það að við erum með besta
félagskapinn af öllum liðum á Islandi,
við erum nánast alltaf saman strákarnir
og gerum mikið saman. Þjálfararnir eru
frábærir þeir eru með góðan aga og mjög
góða þjálfun, alltaf gaman að mæta á
æfingu til þeirra alltaf ferskir og flottir."
Hverar eru fyrirmyndir þínar í íþrótt-
um? „Hef aldrei átt neina sérstaka fyrir-
mynd en ætli það sé ekki Bartlomiej
Jaszka hrikalega sterkur leikmaður með
geðveikar fintur, hrikaleg skot og þvílík-
an kraft bara er núna eitt af uppáhöldun-
um.“
Hvað þarf til að ná langt í handbolta
eða íþróttum almennt? „Þú þarft vilj-
ann, áhugann og þjálfun og að sjálfsögðu
aukaæfingu, auka auka auka það gerir
þig betri en aðra, ég þarf að bæta vörnina
og þar með talið fótavinsluna, grimmdina
og líka þarf ég að bæta smá snerpu.“
Hvers vegna handbolti? „Ég byrjaði í
fótbolta og fannst ekki nóg að æfa bara
eina íþrótt svo ég fór í handbolta og hef
verið þar síðan og sé ekki eftir því vali,
ég hef æft handbolta fótbolta og fim-
leika.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Númer 1,2 og 3 er að komast alla leið í
atvinnumennsku, annars veit ég ekki
alveg hvað ég ætla gera eftir það kannski
maður gerist þroskaþjálfi eða eitthvað
svoleiðis."
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Ætli það séu ekki báðir
Valsblaðið 1959
ÚLFAR þúrðarson
Á árunum 1948-51 eða í stjórnartíð Ulfars, er hafist handa um gerð malar- og gras-
valla að Hlíðarenda. Með því var fyrsta stóra skrefið stigið í þá átt, sem hugsuð var
af forgöngumönnum Hlíðarendakaupanna, um að gera staðinni að íþróttamiðstöð.
Næsta skref var þó sýnu stærra, en það var, er hafizt var handa um byggingu full-
komins íþróttahúss, og það skref var stigið árið 1954, að vandlega athuguðu máli.
Það er í sambandi við þetta mikla átak félagsins, sem Úlfar læknir Þórðarson hefur
getið sér þann orðstý, sem seint mun fyrnast. Hann hefur verið formaður Hlíðar-
endanefndar um árabil og íþróttahússnefndar frá því hún var stofnuð og er enn, og á
honum hefur mætt að öllum jafnaði meginþáttur framkvæmdanna.
Ég hef alla tíð nánast
búið í Valsheimilinu
Valsblaðið 2010
113