Valsblaðið - 01.05.2010, Page 119
Minning
Jóhannes
Bergsteinsson
fæddun 3. janúar 1912
dáinn 10. desember 2010
Kveðja (rá Knattspyrnufélaginu Val
Með Jóhannesi Bergsteinssyni heiðurs-
félaga í Val er einn af mætustu sonum
félagsins fallinn frá. Frá því að Valur var
stofnaður fyrir hart nær öld hafa heiðurs-
félagar í Val verið ellefu en með Jóhann-
esi eru þeir nú allir fallnir frá. Að hlotnast
nafnbótin „heiðursfélagi“ er æðsta við-
urkenning sem einstaklingi hlotnast inn-
an félagsins og þá nafnbót bera aðeins
þeir félagar okkar sem með óeigingjörnu
starfi hafa lagt gjörfa hönd að uppbygg-
ingu félagsins. Jóhannes var jafnaldri Vals
og samleiðin því löng og farsæl jafnt inn-
an vallar sem utan. Þegar saga Vals er
skoðuð kemur nafn Jóhannesar oft upp
og þá í tengslum við góða sigra og gjöf-
ult starf fyrir félagið. Jóhannes lék sinn
fyrsta meistaraflokksleik árið 1929, þá 17
ára. Hann þótti leikinn og útsjónarsamur
og varð sjö sinnum Islandsmeistari á ferli
sínum. Væntanlega er eftirminnilegasti
titillinn sá fyrsti sem Valur vann í meist-
arflokki, en það var árið 1930 og skor-
aði Jóhannes bæði mörk Vals í 2:1 sigri á
KR. Með þessum sigri rættist langþráð-
ur draumur Valsmanna. Jón Sigurðsson,
þá formaður Vals, lýsti stundinni síðar:
„... minnistætt verður mér sigurmarkið,
sem Jóhannes skoraði, ekki aðeins fyr-
ir það að það gerði út um leikinn, heldur
af því hve snilldarlega það var gert. Hann
fékk langa sendingu frá hægri kanti fram
og inn undir vítateiginn. Jóhannes sér
hvar knötturinn muni koma niður, hleyp-
ur þangað í áttina að marki KR og áður en
knötturinn snertir völlinn, fleytir Jóhann-
es honum viðstöðulaust með fastri spyrnu
inn í netið.“
í mörg ár lét Jóhannes að sér kveða,
jafnt innan vallar sem utan. Hann kom víða
við sögu og m.a. var hann í fyrstu lands-
liðsnefnd Islands í knattspyrnu. Jóhannes
lagði hart að sér og uppskar eftir því, Hann
var atorkumaður og hafði mikinn metn-
aðJóhannes var í forystusveit þeirra sem
stóðu að kaupunum á félagssvæði Vals
að Hlíðarenda. Hann var óþreytandi elju-
og athafnamaður á félagssvæði Vals og sá
m.a. um múrverk þegar gamla íþróttahúsið
að Hlíðarenda var byggt.
Nafn Jóhannesar Bergsteinssonar heið-
ursfélaga í Val er skráð með gylltum stöf-
um í sögu félagsins. Guð blessi minningu
einstaklega góðs félaga. Valsmenn votta
aðstandendum Jóhannesar innilegrar sam-
úðar um leið og við þökkum fyrir áratuga
langa farsæla vegferð að Hlíðarenda.
f.h. Knattspyrnufélagsins Vals
Hördur Gunnarsson
formaöur
Jón G. Bergmann
fyrrv. aðalféhirðir
(æddup 31. október 1920
dáinn 22.návembep 2010
Kveðja (rá Knattspyrnuíélaginu Val
Jón G. Bergmann var fæddur á Eyrar-
bakka þann 31. október 1920 og lést þann
22.nóvember 2010. Foreldrar hans voru
þau Andreas S.J. Bergmann og Guðmunda
Bergmann. Árið 1925 fluttist fjölskyldan
til Reykjavíkur þar sem Andreas byggði
hús að Ljósvallagötu 24.
Andreas faðir Jóns var fljótt eftir flutn-
inginn til bæjarins kallaður til félagsstarfa
fyrir Val , og þó að hann væri ekki keppn-
ismaður í íþróttum stundaði hann alla tíð
líkamsrækt eins og sund og skíðagöng-
ur og síðustu árin badminton, allt fram á
níræðisaldur. Æskuheimili Jóns stóð rétt
um hans var algengt að vinir föður hans
úr Val kæmu í kaffi á Ljósvallagötuna eft-
ir kappleiki. Jón æfði og keppti með yngri
flokkum Vals í knattspyrnu og handbolta,
en á fullorðinsárum var hann endurskoð-
andi ársreikninga Vals og sat í fulltrúaráði
félagsins.
Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík árið 1940 og fékk fyrst
vinnu sem vallarvörður á Melavellin-
um þar sem hann átti mikil samskipti við
breska hermenn sem æfðu þar knattspyrnu
á daginn. Árið 1941 réðst hann sem gjald-
keri til embættis Tollstjórans í Reykjavík,
en árið 1953 var hann ráðinn aðalgjaldkeri
Iðnaðarbanka fslands h.f., þar sem hann
starfaði þar til hann fór á eftirlaun.
Jón starfaði mikið að félagsmálum,
var félagi í Oddfellovvreglunni, Karlakór
Reykjavíkur, þar sem hann var formaður
og sat í stjórn Sambands ísl. bankamanna,
ásamt ýmsum öðrum félagsstörfum. Jón
var kvæntur Ágústu Jónasdóttur Berg-
mann og eignuðust þau 5 börn.
A.B.
Valsblaðið 1969
TÖPIN Á FÆRIBANDI
Meistaraflokkur karla í Val (hand-
knattleik) hefur lengi verið stjórnar-
mönnum félagsins torráðin gáta.
Ástæðan til þess hefur fyrst og fremst
verið sú, að leikir flokksins, hafa um
mörg undanfarin ár verið svo misjafn-
ir að gæðum, það þurft hefur hálf-
gerða dulspekinga til þess, að spá fyr-
ir um úrslit leikja. Á síðastliðnu ári
tókst flokkum að sigra á Reykjavíkur-
mótinu og virtist nú áðurnefnd gáta að
vera að leysast á ljómandi skemmti-
legan hátt. En Adam stóð ekki lengi
við. Töpin komu á færibandi í
íslandsmótinu. Tóti og Co. sáu, að
eitthvað varð að gera til þess, að fá úr
því skorið hvort flokkurinn ætlaði að
vera lið eða véfrétt. Ákveðið var að
senda flokkinn til framandi landa, því
að ekkert er vænlegra til eflingar
keppnisliði, bæði félagslega og vegna
þeirrar reynslu, sem fæst í slíkum
ferðum.
við gamla Melavöllinn, og á uppvaxtarár-
Amtsbókasafnið á Akureyri
Valsblaðið 2010