Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 8
Starfsmenn og starfsgreinar
Hér verður getið starfsfólks Búnaðarfélags fslands og þeirra breytinga,
sem orðið hafa á starfsliði þess á árinu.
Nánar kemur fram í starfsskýrslum hér á eftir að hvaða störfum hver og
einn hefur unnið.
1. Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri.
2. Gunnar Hólmsteinsson, skrifstofustjóri. Hann annast reikningshald
félagsins, hefur umsjón með bókasölu svo og forfallaþjónustu í
sveitum.
3. Hafdís Benediktsdóttir, gjaldkeri félagsins og einkaritari búnaðar-
málastjóra.
4. Björn Bjarnarson, jarðræktarráðunautur. Hann starfar sem laus-
ráðinn í 1/3 úr starfi.
5. Óttar Geirsson, jarðræktarráðunautur.
6. Árni Snæbjörnsson, jarðræktarráðunautur, leiðbeinir jafnframt um
æðarrækt.
7. Axel V. Magnússon, ylræktarráðunautur.
8. Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktarráðunautur.
9. Sigurgeir Þorgeirsson, sauðfjárræktarráðunautur í 1/2 starfi.
10. Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðunautur.
11. Jón Viðar Jónmundsson, búfjárræktarráðunautur. Hann annast kyn-
bótastarf í nautgriparækt og fleiri þætti í búfjárræktarstarfinu.
12. Sigurjón Jónsson Bláfeld, loðdýraræktarráðunautur. Hann var í
launalausu leyfi allt árið, en vann nokkuð fyrir félagið, einkum að
flokkun lífdýra.
13. Jón Árnason, fóðurráðunautur. Hann var lausráðinn í 1/3 úr starfi til
1. júní.
14. Gunnar Guðmundsson, fóðurráðunautur.
15. Pétur Sigtryggsson, svínaræktarráðunautur í 1/2 starfi.
16. Ólafur R. Dýrmundsson, landnýtingarráðunautur. Hann leiðbeinir
einnig um sauðfjárrækt.
17. Kristinn Hugason, ráðunautur í kynbótum hrossa í 1/2 starfi.
18. Anna Guðrún Þórhallsdóltir, hlunnindaráðunautur, leiðbeinir einnig
um vissa þætti landnýtingar. Hún var í námsleyfi mikinn hluta ársins.
19. Haraldur Árnason, verkfæra- og vatnsveituráðunautur. Hann lét af
föstu starfi 1. september, en var eftir það lausráðinn í 1/2 starfi.
20. Magnús Sigsteinsson, bygginga- og bútækniráðunautur.
21. Ketill A. Hannesson, búnaðarhagfræðiráðunautur.
22. Óskar ísfeld Sigurðsson, fiskeldisráðunautur. Hann kom til starfa 15.
mars.
6