Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 12
3. Einar Þorsteinsson, Sólheimahjáleigu, jarðrækt og búfjárrækt.
4. Kristján B. Jónsson, Selfossi, jarðrækt og búfjárrækt.
5. Kjartan Ólafsson, Selfossi, garðrækt og jarðrækt.
6. Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir, búfjárrækt í 1/2 starfi.
7. Helgi Eggertsson í búfjárrækt og loðdýrarækt frá 1. júlí.
8. Finnur Bragason í bændabókhaldi ofl. frá júlí.
9. Guðni Ingólfsson í jarðrækt í 1/2 starfi frá 1. júlí.
XVI. Hjá Rœktunarfélagi Norðurlands, sem er samband búnaðarsam-
bandanna á Norðurlandi, starfa tveir ráðunautar:
1. Bjarni E. Guðleifsson, Möðruvöllum, jarðrækt í 3/4 af starfi.
2. Guðmundur H. Gunnarsson við bændabókhald frá 1. júlí.
XVII. Hjá Búnaðarsamtökum á Vesturlandi:
1. Magnús B. Jónsson, Hvanneyri, loðdýrarækt í 1/2 starfi.
Heiðursfélagar
Stjórn Búnaðarfélags Islands kjöri á fundi sínum hinn 14. ágúst eftirtalda
menn heiðursfélaga Búnaðarfélags íslands:
Ásgeir Bjarnason í Ásgarði,
Gunnar Guðbjartsson á Hjarðarfelli,
Hjalta Gestsson frá Hæli,
Sigurð J. Líndal á Lækjamóti,
Sigurjón Sigurðsson í Raftholti
Teit Björnsson á Brún.
Aðrir heiðursfélagar eru:
Einar Ólafsson, fyrrverandi bóndi í Lækjarhvammi,
Elín Ólafsdóttir, fyrrverandi húsfreyja að Sneis,
Gunnar Árnason, fyrrverandi skrifstofustjóri,
Gunnar Árnason, fyrrverandi skrifstofustjóri
Helgi Símonarson á Þverá.
KetiII Guðjónsson á Finnastöðum, heiðursfélagi Búnaðarfélags
íslands, lést á árinu.
Aðalskrifstofa félagsins
Skrifstofan sér um afgreiðslur fyrir hönd félagsins bæði vegna eigin
starfsemi og vegna þeirra verkefna, sem því eru falin samkvæmt lögum.
Þar er séð um bókhald og greiðslur vegna jarðræktarlaga, búfjárræktar-
laga og laga urn forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum svo og aðra starf-
semi, sem félagið hefur umsjón með.
Ritarar annast vélritun og fjölritun vegna starfsemi félagsins, fyrir
Búnaðarþing og aðra fundi á vegum félagsins.
Skrifstofan sér einnig um afgreiðslu og sölu bóka og rita, sem félagið
gefur út eða hefur til dreifingar.
10