Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 14
Framkvœmd laga. Stjórn félagsins, búnaðarmálastjóri og aðrir starfsmenn
félagsins hafa á árinu unnið að framkvæmd þeirra Iaga, sem félaginu er
falin umsjón með eða á aðild að, en þau helstu eru: Jarðræktarlög, búfjár-
ræktarlög, lög um Búeikningastofu landbúnaðarins, lög um forfalla- og
afleysingaþjónustu í sveitum, lög um eyðingu refa og minka (veiðistjóri),
jarðalög, lög um loðdýrarækt og Iög um landgræðslu. í skýrslum starfs-
manna hér á eftir greinir nánar frá ýmsum þáttum í sambandi við fram-
kvæmd laganna.
Fjárhagsáœtlun. Að venju var samin rökstudd áætlun um fjárþörf vegna
starfsemi félagsins á árinu 1988 svo og vegna lögbundinna framlaga
samkvæmt jarðræktarlögum og búfjárræktarlögum og send landbúnaðar-
ráðuneytinu til fyrirgreiðslu við undirbúning að gerð fjárlagafrumvarps.
Er líða tók að samkomudegi Alþingis tóku að berast af því fregnir, að
fjármálaráðherra hygðist fella alveg niður eða skerða stórlega ýmsar
fjárveitingar til landbúnaðarmála. Af því, sem alveg átti að fella niður,
voru fjárveitingar til leiðbeiningaþjónustunnar bæði á vegum Búnaðarfé-
lags Islands og búnaðarsambandanna. Landbúnaðarráðherra mótmælti
þessu strax harðlega og nokkrar leiðréttingar fengust þá þegar í drögum að
frumvarpinu. Er fjárlagafrumvarpið var kynnt í ríkisstjórninni vantaði þó
enn stórlega á að margháttaðar fjárveitingar til landbúnaðarmála væru
viðunandi. Landbúnaðarráðherra mótmælti þessu og lét bóka að hann
féllist ekki á að frumvarpið yrði lagt fram þannig. Samkomulag varð þá
um að stjórnarflokkarnir tilnefndu hver einn mann í nefnd til að fjalla um
fjárveitingar þessar og að frumvarpið yrði lagt fram með þeim fyrirvara að
þær yrðu endurskoðaðar. Fyrir Framsóknarflokkinn var Páll Pétursson,
alþingismaður og formaður þingflokksins, tilnefndur, fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn Egill Jónsson, alþingismaður, og Alþýðuflokkinn Eiður Guðna-
son, alþingismaður.
Fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir 25% niðurskurði til ráðunautaþjón-
ustu Búnaðarfélags íslands. Miðað við fjárlagabeiðni Búnaðarfélags
íslands og tillögur landbúnaðarráðuneytisins vantaði rúmlega 17 milljónir
króna upp á framlög til félagsins og var þá miðað við að það héldi óbreyttri
starfsemi.
I frumvarpinu voru framlög til veiðistjóraembættisins skorin verulega
niður eða sem nam öllum framlögum til sveitarfélaga vegna eyðingar refa
og minka.
A lið jarðræktarlaga vantaði 25% af launum héraðsráðunauta eða 7,1
milljón króna. Alla fjárveitingu vantaði til ferðakostnaðar héraðsráðu-
nauta um 5-6 milljónir króna. Til jarðræktarframlaga voru ætlaðar 100
milljónir króna og vantaði þar 80-90 milljónir miðað við áætlanir
Búnaðarfélags Islands.
Búfjárræktarlögin fengu þó enn verri útreið, þar sem öll framlög til
12