Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 17
haft við ýmsa þeirra. Að lokum varð samkomulag um ályktun, sem borin
var fram og samþykkt samhljóða á hátíðarfundinum.
Nefnd til að endurskoða lög um innflutning búfjár. Hinn 24. maí skipaði
landbúnaðarráðherra nefnd til að vinna að endurskoðun laga um innflutn-
ing búfjár í samræmi við ályktun Alþingis þar um. I nefndina voru
skipaðir:
Davíð Aðalsteinsson, fyrrverandi alþingismaður og bóndi á Arnbjargar-
læk, formaður.
Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir.
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri.
Nefndin hefur ekki lokið störfum.
Nefnd til að endurskoða skipulag leiðbeiningaþjónustunnar var skipuð af
ráðherra í október án tilnefningar. í þeirri nefnd eiga sæti:
Jón Hólm Stefánsson, bóndi á Gljúfri, sem er formaður nefndarinnar.
Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur.
Magnús Sigsteinsson, ráðunautur.
Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur.
Magnús B. Jónsson, kennari.
Aðild að stjórnum, föstum nefndum og innlendum samtökum
Stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Hjörtur E. Þórarinsson á sæti í
stjórninni tilnefndur af stjórn B.í.
Stjórn Bjargráðasjóðs. Hjörtur E. Þórarinsson á sæti í stjórninni sem
formaður B.í. og tók við af Ásgeiri Bjarnasyni við lok Búnaðarþings.
Stjórn Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Jónas Jónsson var endur-
skipaður í stjórnina snemma á árinu til fjögurra ára tilnefndur af stjórn
B.E
Stjórn Lífeyrissjóðs bœnda. Ásgeir Bjarnason á sæti í stjórninni til-
nefndur af B.I. Varamaður hans er Steinþór Gestsson.
Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Jónas Jónsson var endurskipað-
ur í stjórnina á árinu tilnefndur af stjórn B.I.
Rannsóknarráð ríkisins var lagt niður í sinni eldri ntynd með nýjum
lögum, sem gengu í gildi á árinu. Ólafur E. Stefánsson, ráðunautur, átti
sæti í ráðinu og varamaður hans var Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur.
Tilraunaráð Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Ráðunautarnir
Ólafur R. Dýrmundsson og Óttar Geirsson eiga sæti í ráðinu. Varamenn
þeirra eru Axel V. Magnússon og Jón Viöar Jónmundsson, ráðunautar.
Veiðimálanefnd. Jónas Jónsson á sæti í nefndinni tilnefndur af stjórn
B.í.
Stjórn vinnueftirlits í landbúnaði. Jónas Jónsson á sæti í stjórninni
tilnefndur af stjórn B.í.
15