Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 18
Skipulagsnefnd fólksflutninga. Jónas Jónsson á sæti í nefndinni til-
nefndur af stjórn B.I.
Kynbótanefnd nautgripa starfar samkv. 5.gr. búfjárræktarlaga. Búnað-
arþing 1986 kaus í nefndina héraðsráðunautana: Bjarna Arason, Guð-
mund Steindórsson, Jón Atla Gunnlaugsson og Svein Sigurmundsson.
Varamenn þeirra eru: Þórður Sigurjónsson, Stefán Skaftason, Bjarni
Hákonarson og Kristján B. Jónsson. Formaður er Jón Viðar Jónmunds-
son, ráðunautur.
Kynbótanefnd sauðfjár starfar eftir 17. gr. búfjárræktarlaga. í nefndinni
áttu sæti héraðsráðunautarnir Guðmundur Sigurðsson, Ólafur G. Vagns-
son, Páll Sigbjörnsson og Hjalti Gestsson. Formaður er Sigurgeir Þor-
geirsson, ráðunautur.
Sýningarnefnd hrossa starfar samkv. 34.gr. búfjárræktarlaga. Búnaðar-
þing 1986 kaus í nefndina héraðsráðunautana Guðmund Sigurðsson og
Steinþór Runólfsson. Fulltrúar Landssambands hestamanna í nefndinni
voru Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki og Skúli Kristjónsson á Svigna-
skarði. Formaður er Þorkell Bjarnason, ráðunautur.
Fóðureftirlitsnefnd, sáðvörueftirlitsnefnd og áburðareftirlitsnefnd starfa
eftir lögum um eftirlit með framleiðslu og sölu á fóðurvörum, sáðvörum
og áburði. Fulltrúar B.í. í þessum nefndum eru í sömu röð ráðunautarnir
Gunnar Guðmundsson, Óttar Geirsson og Björn Bjarnarson.
Loðdýraleyfanefnd er samstarfsnefnd landbúnaðarráðuneytisins til að
gera tillögur um úthlutun loðdýraleyfa. Jónas Jónsson var fyrir B.í. í
nefndinni, Ingi Tryggvason fyrir Stéttarsamband bænda og Sveinbjörn
Eyjólfsson fyrir landbúnaðarráðuneytið.
Samráðsnefnd um viðurkenningu nýrra býla og félagsbúa í samræmi við
ákvæði jarðalaga starfaði með svipuðum hætti og áður. í nefndinni
störfuðu Jónas Jónsson fyrir hönd B.Í., Árni Jónasson fyrir Framleiðslu-
ráð og Sveinbjörn Eyjólfsson fyrir landbúnaðarráðuneytið.
Þátttaka í samtökuin með öðrum þjóðum
Norrænu bændasamtökin (NBC). Búnaðarfélag íslands er ásamt Stéttar-
sambandi bænda, Framleiðsluráði landbúnaðarins og helstu sölusam-
tökum bænda aðili að NBC. Formaður ísiandsdeildar NBC var Ingi
Tryggvason þar til Haukur Halldórsson tók við síðla árs, Jónas Jónsson er
varaformaður og Gunnlaugur Júlíusson ritari. Aðalfundur NBC var
haldinn í Finnlandi á árinu, en var ekki sóttur af fulltrúum frá B.í.
Samtök norrænna búvísindamanna (NJF). Flestir ráðunautar B.I. eru í
samtökunum og hefur félagið veitt íslandsdeild þeirra nokkurn stuðning.
Ráðstefna NJF var haldin í Árósum í Danmörku í byrjun júlí. Fjórir af
ráðunautum félagsins sóttu ráðstefnuna með nokkrum stuðningi þess. Þeir
16
J