Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 20
sambaridanna". Um það efni hafði framsögu Ævarr Hjartarson, ráðunaut-
ur. Önnur erindi fluttu Jóhannes Torfason um störf Framleiðnisjóðs og
Ketill A. Hannesson um afleiðingar búvörusamninga. Búnaðarmálastjóri
aðstoðaði að venju við undirbúning fundarins.
Útgáfustarfsemi
Búnaðarfélag íslands gefur reglubundið út eftirfarandi rit: 1. Búnaðarritið,
sem er ársrit með starfsskýrslum og Búnaðarþingstíðindum. 2. Frey, sem
kemur út hálfsmánaðarlega. Stéttarsamband bænda stendur að útgáfunni
að /3. 3. Handbók bœnda er uppsláttar- og fræðslurit og kemur út árlega. 4.
Nautgriparœktin, sem kemur út árlega með skýrslum um nautgriparæktar-
starfið. 5. Sauðfjárrœktin, er kemur út árlega með sauðfjárræktarskýrslum.
6. Hrossarœktin, sem er hliðstætt rit þeim tveimur fyrrnefndu. 7. Arsskýrsla
Búreikningastofu landbúnaðarins, sem kemur út árlega.
í röð fræðslurita kom út á árinu nr. 8, Framrœsla, 35 bls. rit samið af Árna
Snæbjörnssyni, ráðunaut.
Saga Búnaðarfélags íslands í 150 ár.
Ritun sögunnar hófst á árinu 1986 og vísast til síðustu ársskýrslu. Rit
þetta, sem verður tvö bindi, er nú allt komið í prentsmiðju, en ekki vannst
tími til að koma því út á árinu.
Landbúnaðarsýningin „Bú ’87“.
Dagana 14.-23. ágúst var haldin vegleg alhliða landbúnaðarsýning í
Reiðhöllinni nýju í Víðidal við Reykjavík. Sýningin var nefnd „Bú ’87“ og
var hún haldin í tilefni afmælisársins í minningu þess að 150 ár voru liðin frá
stofnun varanlegra búnaðarsamtaka á Islandi.
Undirbúningur að sýningunni hófst snemma árs 1985. Það tafði undir-
búningsstarfið nokkuð að lengi var ekki fullljóst hvort takast mundi að
koma reiðhöllinni upp í tæka tíð fyrir sýninguna. Ábyrgðaraðilar að
sýningunni voru auk Búnaðarfélags íslands, landbúnaðarráðuneytið, Stétt-
arsamband bænda og Framleiðsluráð landbúnaðarins. 1 sýningarstjórn
sátu: Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri, Gunnar Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri, Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri og Ingi
Tryggvason, formaður, frá Stéttarsambandi bænda, Auðun Ólafsson frá
Markaðsnefnd landbúnaðarins og Jónas Jónsson fyrir Búnaðarfélag íslands
og var hann formaður. Sýningarstjórn hélt yfir 40 fundi.
Magnús Sigsteinsson, ráðunautur, var ráðinn framkvæmdastjóri sýning-
arinnar, Agnar Guðnason, yfirmatsmaður, ritari og Gunnar Bjarnason,
teiknari, hönnuður hennar. Ólafur H. Torfason, forstöðumaður Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins, var blaðafulltrúi sýningarinnar og annaðist
18
i