Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 29
C: Verktaki í plógrœsi
Magn, m' Verð, kr. á m'
1. Rsb. Mýramanna á eigin svæði 242.000 3,30
2. Rsb. Mýramanna, svæði Dalasýsla 300.000 2,95
Samkvæmt útboðsskilmálum og samningum við verktaka eru greiðslur
bænda einum mánuði eftir verklok hjá hverjum einum og ríkisframlag á að
greiðast verktaka með jöfnum greiðslum í janúar og febrúar 1988.
Unnið hefur verið á skrifstofunni eftir þörfum, m.a. gert upp og
úrskurðaðir reikningar vegna félags— og heimilisvatnsveitna, sem njóta
eiga framlags skv. jarðræktarlögum. Þá hefi ég fært gjörðabók stjórnar
Búnaðarfélags íslands.
Hér fara á eftir skýringar með töflu á næstu síðu.
1. Almennt útboð í framræslu skv. jarðræktarlögum 1968.
2. Um áramót 1980/81 er með lögum breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils
með því að frá og með 1. janúar 1981 hundraðfaldast verðgildi
krónunnar. Framlög til framræslu greiðast í janúar- og febrúarmánuði á
næsta ári eftir framkvæmd.
3. Árið 1972 skerða jarðræktarlög framlög til nýrra skurða á jörðum sem
hafa yfir 30 ha túnstærð allt að 50%. Ákvæðið gildir um framlög til
framkvæmda unninna á árunum 1979—1984.
4. Jarðræktarlögin voru í endurskoðun hjá Alþingi árið 1985 og voru
staðfest 1. júlí 1985.
Vegna þess hve lögin komu seint út hafði útboðum í framræslu veriö
frestað til 9. maí, en skv. gildandi lögum áttu þau að fara fram fyrir 15.
mars. Þegar svo lögin loksins komu heimiluðu þau framlagsveitingu á 7
milljón m1 gröft á árunum 1985 og 1986; plógræslan nam fyrir sama tímabil
1,2 milljón metrum. Þess vegna þurfti á árinu 1986 að skerða umbeðinn
skurðgröft verulega og fella niður plógræslu. í lögunum frá 1987 er árlegt
hámark skurðgraftar ákveðið 3,5 milljón m' og plógræsla 600 km.
Ég þakka þeim, sem ég hef átt samstarf við, góða samvinnu á liðnu ári.
27. janúar 1988,
Björn Bjarnarson.
27