Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 31
II. Skýrsla Óttars Geirssonar
Jarðabœtur. Jarðabætur á árinu 1986 urðu
heldur minni en árið á undan eins og fram
kemur í meðfylgjandi töflu. Einkum voru
það þó framræsluskurðir, sem voru mun
minni en árið áður. Það var vegna þess, að
ríkisframlag fékkst aðeins til 2 millj. m' árið
1986. Það hefur þó ekki dregið úr þeim tíma,
sem fer í umsjón með úttektum jarðabóta og
útreikningi á jarðabótaframlögum, og síst nú
þegar breytingar hafa orðið á jarðræktar-
lögum, en regiugerð hefur enn ekki verið
gefín út með þeim. Þá berast margar fyrir-
spurnir bæði frá bændum og héraðsráðu-
nautum um það, hvernig fara skuli með ýmis mál, sem upp koma. Veru-
legur tími hefur farið í að semja tillögur að reglugerð með jarðræktar-
lögunum.
Fundir. Á Ráðunautafundi Búnaðarfélags íslands og Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins, sem haldinn var í febrúar, hélt ég erindi um votheys-
verkun og var höfundur að öðru með Árna Snæbjörnssyni, en það fjaliaði
um endurræktun túna. Ég kom á aðalfund Búnaðarfélags Andakílshrepps
í apríl og um mánaðamót júní og júlí var ég á þingi Norræna búvísindafé
lagsins (NJF), sem haidið var í Árósum í Danmörku að þessu sinni. Þar
voru ýmis athyglisverð mál á dagskrá og fylgdist ég m.a. með erindum og
umræðum um áhrif landbúnaðar á umhverfið. Þar kom fram, að besta
vörn bænda gegn mengun umhverfis vegna áburðarnotkunar og annarra
efna á gróður, er að hafa hæfilega stóran hluta ræktunarlandsins sem
graslendi, því að hætta á útskolun efna er margföld á akurlendi miðað við
tún. Það er því ekki mikil hætta á efnamengun frá íslensku ræktunarlandi
þótt sjálfsagt sé að vera á verði gegn henni.
I lok ágúst var ég á fundi, sem Búnaðar- og garðyrkjukennarafélag
íslands gekkst fyrir á Hvanneyri, en þar voru fyrirlesarar hjónin John
Callaghan og Patricie O’Hara sem sögðu frá fyrirkomulagi rannsókna,
leiðbeininga og kennslu í landbúnaði á írlandi.
Ritstörf. Töluverður tími fer á hverju ári í leiðbeiningar í rituðu máli. Ég
er ritstjóri Handbókar bænda ásarnt Matthíasi Eggertssyni og fer drjúgur
tími í Handbókina. Auk þess birtist ein grein eftir ntig í Frey.
29