Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 35
III. Skýrsla Árna Snæbjörnssonar
Samkvæmt jarðræktarlögum er árlega heim-
ilað að greiða ríkisframlag á skurðgröft, sem
nemur allt að 3,5 milljónum rúmmetra í
opnum skurðum og 600 km í plógræsum. I
byrjun árs 1987 kom í ljós að pantanir
hljóðuðu hins vegar upp á rúmlega 4.1
milljón rúmmetra í opnum skurðum og 584
km í plógræsum. Fyrri hluta vetrar vann ég
að því að úthluta því sem til skiptanna var og
undirbúa útboð á þeim svæðum, þar sem
þau eru viðhöfð. Gröftur opinna skurða var
boðinn út á 6 svæðum og plógræsla á 1
svæði. Tilboð voru opnuð 29. apríl að við-
stöddum þeim sem buðu. Eftir skoðun og yfirferð á þeim tilboðum sem
bárust var gerð tillaga til stjórnar um hvaða tilboðum skyldi tekið, ásamt
tillögum um magn og verð á öðrum svæðum en útboðssvæðum. Stjórn
Búnaðarfélags íslands samþykkti tillögurnar og gerir Björn Bjarnarson
grein fyrir því í sinni skýrslu.
Skurðamælingar voru óvenju litlar á árinu. Ég mældi aðeins fyrir
skurðum á tveim bæjum. Nokkrum aðilum leiðbeindi ég varðandi lok-
ræsagerð með plaströrum, en einn þeirra var með verulega stórt verkefni.
Ég koma á tvo staði til að mæla fyrir vatnsveitum í forföllum Haraldar
Árnasonar. Ásamt Óttari Geirssyni mældi ég fyrirhugað ræktunarland á
Stóra-Ármóti í Hraungerðishreppi og kannaði um leið jarðvegsdýpt. Síðan
teiknaði ég kort af svæðinu og gerðum við Óttar tillögur að framræslu. f>á
sá ég um hæðarmælingu í og við nýju Reiðhöllina vegna framkvæmda, sem
tengdust BÚ’87.
Á undanförnum árum hefur verið talsverður áhugi á því að nýta inn-
lenda mómold til ræktunar í gróðurhúsum og til framleiðslu gróðurmoldar
fyrir innlendan markað. S.l. sumar fór ég í tvær ferðir til að kanna vinnslu
mómoldar. Með Bjarna Arasyni fór ég um nokkur svæði á Mýrum, en þar
fiiinast víða vel hreint og aðgengilegt starartorf. Aðaltilgangur ferðarinnar
var að leita að mosamómold (sphagnum), en ekki fundust nema þunn lög
og þá í talsverðri dýpt. Áður hafði ég fundið svæði með nokkuð þykku lagi
af hvítmosa (sphagnum), en besta efnið er á talsverðu dýpi og því erfitt að
ná því. Síðar fór ég með leigjendum Stórólfsvallabúsins á nokkra staði í
Árni Snœbjörnsson
3
33