Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 37
Ég sat stjórnarfundi Æðarræktarfélags íslands og ritaði þar fundargerð-
ir. A aðalfundi Æðarræktarfélags Islands flutti ég skýrslu um störfin á
árinu. Ég sótti aðalfundi hjá tveim æðarræktardeildum, þ.e. Æðarvé og
Æðarræktarfélagi Borgarfjarðar, en á báðum fundunum hélt ég erindi og
sagði fréttir frá starfinu. A árinu sat ég þrjá fundi með nefnd, sem fjallar
um aðferðir við fækkun máva og hrafna, en nefndin hefur ekki enn Iokið
störfum. Ásamt Sigurlaugu Bjarnadóttur sat ég fund með Útflutningsráði,
þar sem fjallað var um aukna kynningu á íslenskum æðardún erlendis.
Einnig sátum við fund í viðskiptaráðuneyti með öllum útflutningsaðilum
íslensks æðardúns, en á fundinum var samþykkt lágmarksverð til útflutn-
ings. Þá sat ég fund Samtaka selabænda í nóvember. Við Bændaskólann á
Hvanneyri kenndi ég æðarrækt eins og undanfarin ár.
Á árinu skrifaði ég grein í Fréttabréf Bsb. Austur- Skaftafellssýslu um
æðarrækt á svæðinu. Ég tók saman fréttatilkynningu frá aðalfundi Æðar-
ræktarfélags íslands, bæði fyrir fjölmiðla og félagsmenn ÆÍ. Ég skrifaði
grein í Frey um dúntekju og sá um búnaðarþátt í ríkisútvarpi um æðarrækt.
Þá voru allmörg viðtöl við mig á árinu bæði í blöðum og útvarpi.
S.l. vor setti ég upp til reynslu varpskýli frá Vírneti hf., Borgarnesi, í
nágrenni Reykjavíkur. Jafnframt eru ýmsir einstaklingar að prófa þessi
hús, en reynslan verður að sýna notagildi þeirra. Þá var hafinn undirbún-
ingur að uppsetningu rafgirðinga um æðarvarp í Hvalfirði til að verja
varpið fyrir ágangi tófu. Ef vel tekst til fæst þarna reynsla, sem nýst gæti
fjölda æðarbænda.
Á s.l. sumri fór verulegur tími í undirbúning og uppsetningu hlunninda-
deildar á landbúnaðarsýningunni BÚ’87, en ég vann að því með mörgum
fleirum, ásamt því að veita upplýsingar í hlunnindabás meðan á sýningunni
stóð. í tengslum við sýninguna tók ég þátt í að gera video-mynd í æðar-
varpinu á Mýrum í Dýrafirði og var mynd þessi sýnd á BÚ’87.
Á árinu var unnið að því að koma á skýrari reglum um bætur úr Bjarg-
ráðasjóði til æðarbænda, ásamt því að fá rýmri reglur varðandi lán úr
Stofnlánadeild landbúnaðarins. I báðum tilvikum náðist verulegur
árangur.
Lög um fuglaveiðar og fuglafriðun hafa veriö í endurskoðun um alllangt
skeið, mjög mikilvægt er að þarna verði ekki hallað á rétt æðarbænda og
var lögð talsverð vinna í að fylgjast með þessu máli og gera athugasemdir
við þau drög, sem nú liggja fyrir.
Á árinu lauk ég við að gera skrá um allar varpjarðir í landinu. Sarn-
kvæmt skrá þessari eru 419 jarðir með æðarvarp, sumar þeirra eru þó með
mjög lítið varp.
Reynt hefur verið að fylgjast með markaðsmálum og miðla upplýsing-
um til æðarbænda, en ekki verður annað séð en söluhorfur séu góðar, því
að dúnninn selst nú jafnóðum og hann er tilbúinn til sölu.
35