Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 49
III. Nautauppeldisstöðin Þorleifskoti
Árið 1987 komu inn á stöðina 44 kálfar.
Skiptast þeir þannig eftir landshlutum: 21 af
Suðurlandi, 17 af Norðurlandi, 5 af Vestur-
landi, 1 af Austurlandi. Kálfarnir eru yfir-
leitt hraustir þegar þeir koma, þó þurfti að
gefa nokkrum fúkkalyf fyrstu dagana eftir
flutning. Fóðrun gekk vel á árinu, enda hey
ntjög góð. 33 kálfar náðu 1 árs aldri, meðal-
' þiingi þeirra á fæti var 337 kg. 12 naut voru
fl-é felld, og 18 voru flutt að Nautastöðinni
|||||| Hhb Hvanneyri. í árslok voru 52 gripir á stöð-
inni5 þar af eru j() sem bíöa flutnings að
Sigurmundur Gudbjörnsson Hvanneyri.
Störf mín við stöðina voru með svipuðum hætti og undanfarin ár. Alla
kálfa af Suðurlandi sæki ég sjálfur. Við komu á stöðina eru kálfarnir
vigtaðir, brjótsmál tekið og fyllt út eyðublöð með upplýsinguni um
kálfinn, og eru þau send; eitt til Búnaðarfélags íslands, annað til
Sauðfjárveikivarna að Keldum og þriöja til Nautastöðvarinnar Hvanneyri.
Kálfarnir eru settir í sérstakar móttökustíur, sem þeir eru í uns héraðsdýra-
læknir hcfur skoðað þá. Ef þeir eru heilbrigðir eru þeir settir í sóttkví og
hafðir þar í fjórar vikur, síðan í aðalfjós. Nautauppeldisstöðin er sóttvarn-
arstöð og þarf allt hreinlæti því að vera í góðu lagi, fara verður eftir settum
reglum og eru öll þrif mjög tímafrek. Hálfsmánaðarlega eru allir gripir
vigtaðir og fóðrið í þá, með tilheyrandi skýrsluhaldi. Ég annast einnig öll
fóðurkaup og móttöku á því, ennfremur viðhald á tækjabúnaði. Köfnunar-
efnistankur er í minni vörslu og ég sé um sæðisdreifingu til frjótækna á
Suðurlandi.
Á landbúnaðarsýningunni í Víðidal vann ég við vörslu og hiröingu gripa,
dagana 11.—21. ágúst. Fundi kynbótanefndar hef ég setiö á árinu.
Samstarfsmaður minn er Þórfríður Soffía Haraldsdóttir og þakka ég
henni vel unnin störf og Jóni Viðari Jónmundssyni gott samstarf.
Skrifað í janúar 1988.
Sigurmundur Guðbjörnsson.
47