Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 52
hafði þá þegar fengist til skoðunar undan öllum nautunum. Samtals höfðu
þá verið skoðaðar 935 kvígur undan þeim 22 nautum Nautastöðvarinnar,
sem fædd eru árið 1981. Þessi naut verða endanlega dæmd snemma á
þessu ári, en strax má fullyrða að þetta er sterkasti árgangur nauta, sem
nokkru sinni hefur komið fram í ræktuninni hér á landi.
Nautastöðin. I starfsskýrslu Diðriks Jóhannssonar er gefið nákvæmt
yfirlit um starfsemi Nautastöðvarinnar á árinu 1987 og Sigurmundur Guð-
björnsson gerir grein fyrir starfi Uppeldisstöðvarinnar. Ég annast fyrsta
val á nautkálfum fyrir Uppeldisstöðina þegar upplýsingar berast frá
héraðsráðunautum um kálfa undan þeim kúm, sem koma til greina sem
nautsmæður. Rekstur beggja stöðvanna gekk með sérstökum ágætum á
árinu. Framboð á nautkálfum var mjög jafnt og gott. Við val á nautum
síðla á þessu ári gerðist það í fyrsta sinn að nautastofninn, sem úr var að
velja, var það jafn og álitlegur að nefndarmenn í kynbótanefnd töldu ekki
ástæðu til að fella neitt naut frá notkun vegna eigin útlits.
Sauðfjárræktin.
Skýrslur fjárrœktarfélaganna. Ég sá að verulegu leyti um uppgjör á
skýrslum fjárræktarfélaganna á árinu 1987. Uppgjöri á skýrslum frá
haustinu 1986 lauk að mestu á vordögum 1987 og mun Sigurgeir Þorgeirs-
son gera grein fyrir niðurstöðum skýrslnanna í starfsskýrslu sinni.
Smávægilegar breytingar á uppgjöri skýrslnanna voru gerðar sumarið
1987. Nokkuð barst af skýrslum til vinnslu sumarið 1987 og fengu þeir
bændur lambabækur fyrir haustið. Þessi breyting var tekin upp í skýrslu-
haldinu á árinu 1986 og er ástæða til að þetta aukist á næstu árum.
Skýrslur frá haustinu 1987 tóku að berast í byrjun nóvember og um jól
var lokið uppgjöri á öllum skýrslum, sem þá höfðu borist, en það voru
skýrslur fyrir rúmlega 100 þúsund ær. Er þetta í fyrsta sinn frá því uppgjör
á þessum skýrslum hófst að mögulegt hefði verið að ljúka uppgjöri á fleiri
skýrslum en bárust á þessum tíma.
Auk þessa er um að ræða uppgjör á afkvæmarannsóknum frá haustinu
1987 og einnig sérstakt uppgjör á mælingum á fituþykkt á dilkaföllum á
nokkrum búum, mest frá Sf. Kirkjuhvammshrepps.
Sýningar. Haustið 1987 kom ég fremur lítið að sýningastörfum á sauðfé.
Ég dæmdi afkvæmahópa í Norður- Þingeyjarsýslu og Austur-Skaftafells-
sýslu og jafnframt því veturgamla hrúta í þessunt sýslum. Einnig mætti ég
sem aðaldómari á nokkrum hrútasýningum í Kjósarsýslu, Árnes- og Rang-
árvallasýslu. Mætti sem meðdómari á héraðssýningu í Rangárvallasýslu.
Að síðustu skal þess getið, að ég annaðist mælingar og mat á föllum lamba
í afkvæmarannsóknum í Strandasýslu, sem voru að vanda allumfangs-
miklar.
50