Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 65
Eiríkur Guðmundsson frá Torfastöðum tók við starfi Helga og Rúna
Einarsdóttir frá Mosfelli verður tamningamaður frá áramótum á stöðinni.
Ársþing Landssambands hestamanna sat ég á Selfossi 30. og 31. okt.
Námskeið í kynbótadómum hrossa var haldið á Hólum 13.— 14. apríl
með 18 þátttakcndum við góðar aðstæður. Kennarar með mér voru Krist-
inn Hugason, Sigurður O. Ragnarsson og Magnús Lárusson. Kristinn
skipulagði kennslu með mér og útbjó námsgögn.
Við Kristinn Hugason tókum að okkur undirbúning að hrossadómum
vegna starfsíþróttakeppni í þeirri grein á landsmóti U.M.F.Í. á Húsavík í
júlí.
Vígsla Reiðhallar í Víðidal fór fram 10. júlí. Var boðið að koma með
flokk stóðhesta frá Stóðhestastöð, sem var þegið með þökkum, og tókst
sýningin vel, þótt allt væri nýtt og framandi, einkum fyrir folana fjóra,
unga tamningahesta 4ra og 5 vetra.
Glæsilegt hús er risið, sem kemur til með að eiga stóran þátt í fram-
förum unga fólksins í reiðmennsku og verða grunnur að reiðskóla þeim,
sem fulltrúar á Búnaðarþingi bentu á fyrir löngu síðan. Sigurður Líndal,
bóndi, hefur undirbúið þessa hugmynd og fylgt henni svo myndarlega eftir
sem raun ber vitni. Hans er heiðurinn öðrum fremur.
Heimsmeistaramót íslenskra hesta var haldið í Austurríki (Weistrach)
12.—16. ágúst. Þar hafði ég verið valinn sem kynbótadómari og fór, en
fyrir misskilning þeirra, sem fengu mig til fararinnar og skipulögðu ferð
mína, kom ég degi of seint til starfa og dæmdi því ekki, en varamaður,
erlendur, leysti það mál. Slíkir kynbótadómar fara varla oftar fram á
þessum mótum með þátttöku íslendinga, þar sem við höfum erfiða að-
stöðu til þátttöku, viljum ekki fara með bestu kynbótahrossin út, þar sem
við megum ekki taka þau heim aftur. Þess vegna getum við ekki tjaldað
því besta til að sýna væntanlega yfirburði okkar, heldur erum dæmd til að
tapa leiknum. Hér heima er almennur vilji að hætta þátttöku í keppni kyn-
bótahrossa á þessum mótum, en láta nægja þátttöku í gæðinga- og íþrótta-
keppni. Er það vel.
Við kennslu var ég lítið, en leiðbeindi þó einum nemanda við Búvísinda-
deild á Hvanneyri í hrossadómum og var skipaður prófdómari í faginu.
Leiðbeindi stúdentum við Ármúlaskóla í Reykjavík í dómstörfum og
byggingu hrossa.
Fundir. Kom á 24 almenna fundi hjá hrossaræktar- og hestamannafé-
lögum um land allt og 9 nefndarfundi við ýmis mál hrossum viökomandi.
Eg þakka samstarfsmönnum í Gunnarsholti og Kristni Hugasyni fyrir
gott samstarf og ánægjulegar stundir. Mikill áhugi og dugnaður er í
herbúðum hestamanna víða um land. Það er ánægjuefni og þeim öllum
þakka ég gott og skemmtilegt samstarf. Að lokum þakka ég stjórn B.í. og
búnaðarmálastjóra góða samvinnu og einkum kveð ég Ásgeir Bjarnason
63