Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 73
Tafla 2 sýnir fjölda alirefa og hvolpa 1980-1987.
Ár Læður Högnar Hvolpar Hvolpar á paraða læðu Þungi högnahv. 15. okt/kg
1980 210 70 1.092 5,4
1981 628 210 4.175 6,6 8,34
1982 1.544 499 10.300 6,7 8,50
1983 3.948 1.216 25.338 6,4
1984 6.096 1.980 32.962 5,4
1985 9.048 2.770 53.384 5,9
1986 16.170 4.042 84.000 5,2
1987 18.000 4.500 88.000 4.9
Fundir og ferðalög. í ár leiðbeindi ég nokkrum skinnaverkunarstöðvum
við skinnaverkun, flokkaði lífdýr, valdi sæðisgjafa á sæðingastöðvar, sótti
fundi er við komu loðdýraræktarfélögunum, vann með byggingarnefnd
loðdýrabygginga, svaraði munnlegum og skriflegum fyrirspurnum loð-
dýrabænda, alþingismanna, sölumanna, tryggingarmanna og ýmissa félaga
auk þess sem ég sótti einstaka bændur heim í vissum tilvikum.
Ritstörf. í 150 ára afmælisrit Búnaðarfélagsins skrifaði ég um loðdýra-
ræktina frá aldamótum.
Ferðalög erlendis. Á árinu fór ég tvær ferðir til Danmerkur. Fyrri ferðina
fór ég dagana 16. ágúst til 2. september á eigin kostnað. Kynnti ég mér
húsa- og búranýtingu fyrir minka eftir fráfærur. Seinni ferðin var farin
16.—22. okt. og var hún á námskeið í skinnaflokkun hjá D.P.A.
Önnur störf. Þá starfaði ég með Páli Hersteinssyni, veiðistjóra, Stefáni
Aðalsteinssyni, Rala, Eggerti Gunnarssyni á Keldum og Jóni Ragnarssyni
í SÍL, í sérstöku rannsóknarverkefni með íslenska melrakkann.
Stjórn B.í. og búnaðarmálastjóra og samstarfsfólki mínu þakka ég sam-
starfið á árinu.
Sigurjón Jónsson Bláfeld.
71