Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 75
Eins og undanfarin ár eða allt frá árinu 1983 var gerð spá um svínakjöts-
framleiðsluna á komandi ári. Það þarf ekki að fjölyrða um hversu gagnlegt
það er fyrir svínabændur, að nokkurn veginn sé vitað um hver áramót hve
mikil svínakjötsframleiðslan verði á komandi ári. Ef sæmilega nákvæm
áætlun um svínakjötsframleiðsluna á komandi ári lægi fyrir um hver ára-
mót á að vera auðveldara að skipuleggja hana. Töflur I og II sýna fram-
leiðsluspá fyrir árin 1983-1987 og frávik frá henni á viðkomandi ári.
Tafla 1. Fjöldi nytjagrísa samkvæmt framleiðsluspá 1983—87, fjöldi
nytjagrísa samkvæmt sláturskýrslum 1983—86 og frávik frá framleiðslu-
spá 1983—86.
Fj. nytja- Fj. nytja- Frávik frá
grísa skv. grísa skv. framleiðsluspá:
framl. spá slátursk. Fj. grísa %
1983 ........................... 23369 23170 + 199 0,9
1984 ........................... 26572 26182 + 390 1,5
1985 ........................... 28116 29005 — 889 3,2
1986 .......................
1987 ....................... 36216
Tafla 2. Framleiðslumagn (tonn) samkvæmt framleiðsluspá 1983—87,
framleiðslumagn samkvæmt sláturskýrslum 1983—86 og frávik frá fram-
leiðsluspá 1983—86.
Framleiðslu- magn (tonn) skv. fram- leiðsluspá Framlciöslu- magn (tonn) Frávik frá framleiðsluspá
skýrslu Tonn %
1983 1.300,2 1.310,2 + 10 0,8
1984 1.484,1 1.437,6 — 46,5 3,1
1985 1.540,1 1.641,3 + 101,2 6,6
1986 1.776,5 1.874,4 + 97,9 5,5
1987 1.984,6
Helstu ástæður fyrir þessum mismun á framleiðsluspá og niðurstöðum
samkvæmt skýrslum sláturleyfishafa og fóðurbirgðafélaganna eru eftirfar-
andi:
A) Samkvæmt skýrslum sláturleyfishafa og fóðurbirgðafélaganna hefur
fjöldi nytjagrísa eftir gyltu aukist úr 13.6 grísum 1985 upp í 14.8 grísi 1986
eða um 1.2 grísi á hverja gyltu. Þennan mikla árangur, sem náðst hefur á
árinu 1986, má án efa rekja til þess að stöðugt fleiri svínabændur hafa
byrjað á nákvæmu skýrsluhaldi. Á allmörgum svínabúum er fjöldi nytja-
grísa nú á bilinu 18—20 og þar yfir, en slíkt var óþekkt fyrir 1—2 árum.
73