Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 84
hafi náð nægilega góðum tökum á fóðurgerðinni. Þar hef ég einkum í huga
stöðugleika í efnasamsetningu frá einum tíma til annars.
Síðsumars voru teknar saman ábendingar um meðhöndlun og verkun á
sláturmat í Ioðdýrafóður fyrir sláturleyfishafa og fóðurstöðvarnar. í
framhaldi af því sat ég fáeina fundi með forsvarsmönnum þessara aðila,
þar sem ræddar voru leiðir til að bæta meðhöndlun og nýtingu þessara
afurða.
Snemma í febrúar stóð Búnaðarfélagið fyrir tveggja daga námskeiði
fyrir starfsmenn fóðurstöðvanna. Námskeiðið var allvel sótt. Auk fræðslu-
erindis á því námskeiði mætti ég á fundum hjá þrem loðdýraræktarfél-
ögum á árinu og hélt erindi um fóðrun og fóðurgerð.
í nóvember skipulagði ég með héraðsráðunautum ferðalög H.Konner-
up Madsen um landið, en hann dvaldi hér um 3ja vikna skeið á vegum B.í.
Eg tel að dvöl hans hér hafi verið afar gagnleg, ekki síst hvað snertir
fóðrun og fóðurgerð, skoðun og mat á högnum sæðingastöðvanna og
flokkun silfurrefa.
Nautgriparœkt.
Starf á sviði annarra búgreina en loðdýraræktar var aðallega tengt
fóðrun nautgripa. Farið var í nokkrar heimsóknir til kúabænda, bæði á
Suður— og Vesturlandi. Ég mætti á fræðslufundi hjá einu nautgriparækt-
arsambandi á árinu og flutti erindi um fóðrun mjólkurkúa.
Ferðalög erlendis.
í öndverðum júlímánuði fór ég í 5 daga ferð til Danmerkur. Auk þess að
sitja á ráðstefnu norrænna búvísindamanna, N.J.F., í Arósum, ferðaðist
ég tvo daga með H.Konnerup Madsen, loðdýraræktarráðunaut, og
skoðaði nokkur loðdýrabú, fóðurstöðvar og kom á tilraunastöðina „For-
sögsfarmen Vest“. Auk þess dvaldi ég á tilraunastöðinni „Trollesminde" á
Norður Sjálandi, en þar er um sinn miðstöð loðdýraræktarrannsókna í
Danmörku.
í lok september (28—30/9) sat ég árlega fagráðstefnu loðdýraræktar-
skorar N.J.F. í Tromsö í N.-Noregi.
Nefndarstörf.
I upphafi starfstímans hjá félaginu tók ég sæti sem fulltrúi félagsins í
fóðurnefnd, sbr. lög nr. 53/1978. Fóðurnefnd hélt einn formlegan fund á
árinu, en á hennar vegunt er unnið að samningu nýrrar fóðurreglugerðar.
Því starfi lauk ekki á árinu.
í apríl var ég skipaður í nefnd til að ganga frá samningum um byggingu
og rekstur sóttkvíarbús fyrir innflutt loðdýr á Möðruvöllum við Eyjafjörð.
82