Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 93
sýslur með Gunnari M. Jónassyni og Sigurði Sigvaldassyni á Bygginga-
stofnun landbúnaðarins til að líta eftir „útboðsminkaskálunum“, sem áðan
var sagt frá, og ræða við þá aðila, sem nálægt því máli komu með mér.
Ég flutti fyrirlestra um loðdýrahús á báðum bændaskólunum í janúar og
mars. Ásamt Óskari ísfeld skoðaði ég fiskeldisstöð Þorfinns Þórarinssonar
á Spóastöðum og Fellalax á Kjalarnesi.
Landbúnaðarsýningin BÚ ’87
í ársbyrjun var ákveðið að ég yrði framkvæmdastjóri landbúnaðarsýn-
ingarinnar BÚ ’87. Fór þess vegna mikill hluti af vinnutíma mínum á árinu
í það verkefni. Undirbúningur sýningarinnar hófst af fullum krafti strax í
ársbyrjun með kynningarstarfi og viðræðum við aðila, sem væntanlega
tækju þátt í sýningunni. Gerður var samningur við Reiðhöllina hf. og
Flestamannafélagið Fák um að halda sýninguna þar. í því sambandi voru
einnig tekin á leigu fjögur hesthús á svæðinu í eigu einstaklinga fyrir bú-
fjársýningu.
Um vorið hófst undirbúningur á svæðinu. Ýmislegt þurfti að laga og
snyrta, útbúa svæði fyrir gróðursýningarreiti og girða þurfti beitarhólf.
Landgræðsla ríkisins sá um að græða upp gamla grjótnámið umhverfis
Reiðhöllina.
Samkvæmt samningi átti Reiðhöllin að vera tilbúin þann 20. júlí, en
reyndin varð sú að vinna við bygginguna stóð næstum allt fram til þess
tíma er sýningin hófst. Á vegum sýningarinnar var byggt hús fyrir loðdýr
og einfalt fjós.
BÚ ’87 var opnuð föstudaginn 14. ágúst og lauk að kvöldi sunnudagsins
23. ágúst. Sýningardeildir voru alls 76 og sýnendur u.þ.b. 100. Lögð var
áhersla á fjölbreytta búfjársýningu, en kynbótasýning var einungis á
hrossum og kúm af Suðurlandi. Settar voru upp fiskeldisdeild og loðdýra-
deild. í anddyri Reiðhallarinnar var vegleg hlunnindasýning og sögu-
sýning, þar sem sýnd var þróun búskapar undanfarin 150 ár. Þróunar-
sýningin endaði í tölvudeild og hagdeild bændasamtakanna.
Einnig má nefna sérstaklega þá nýjung, að á vegum markaðsnefndar
landbúnaðarins var sérstök sýning á kjöti og kjötvinnslu í samvinnu við
félag kjötiðnaðarmanna.
Alls komu u.þ.b. 50 þúsund gestir á sýninguna. Veður var mjög gott
flesta sýningardagana, einn dag var rok og rigning.
Aðalhönnuður BÚ ’87 var Gunnar Bjarnason. Leysti hann starf sitt
mjög vel af hendi og var samstarfið við hann sérstaklega ánægjulegt. Mér
er í huga þakklæti til allra, sem unnu með mér að undirbúningi
sýningarinnar og á henni. Það var stórkostlegt að finna hvað allir lögðu sig
fram um að láta BÚ ’87 ganga vel.
í janúar 1988, . , .
Magnus Sigstcmsson
91