Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 94
Búnaðarhagfrœðiráðunauturinn
Árið 1987 var með svipuðu sniði og árið
1986. Á ráðunautafundi kynnti ég þá
brevtingu, sem gerð var á áætlanaforritinu
„Búhag“ af Fjárhagskönnunarnefnd, en í
henni eru auk mín Ævarr Hjartarson og
Sveinbjörn Eyjólfsson. Breytingin er í því
fólgin, að byrjað er á því að skrá inn upplýs-
ingar um búreksturinn úr landbúnaðarfram-
tali. Tölvan reiknar síðan út framlegð á
ærgildisafurð, lítra mjólkur, kg nautakjöts
og kg kindakjöts. Að þessu loknu er gerð
áætlun fyrir nærsta ár og þá reiknar tölvan út
nýja framlegð, sem síðan færist yfir í eldri
Búhag og gildir fyrir öll fimm árin sé því ekki breytt. Með þessu er verið að
skoða núverandi rekstur og reyna að finna hvað er að og síðan að sýna
hvernig má hugsanlega bæta reksturinn. Hér er farið inn á þá braut að
reikna allt á ærgildisafurð en ekki á kú eða kind eins og venja hefur verið.
Á árinu hefur þetta forrit verið mikið notað af mér og héraðsráðunautum.
Lánastofnanir og þá einkum Stofnlánadeildin hafa gert þá kröfu að fimm
ára áætlun fylgdi lánsumsókn hvers bónda og Framleiðnisjóður gerir nú
einnig þá kröfu að áætlun fylgi umsókn um styrk til búháttarbreytingar.
Mikill tími hefur farið í áætlanir og að leiðbeina héraðsráðunautum við
verk þeirra og má segja að þessi samvinna hafi í heild verið mjög gagnleg.
Starfshópi var komið á fót um fiskeldi og hef ég reynt að kynna mér
nokkuð arðsemi fiskeldis, en vísa að öðru leyti til skýrslu fiskeldisráðu-
nauts um starf þessa vinnuhóps.
Fjárhagskönnunarnefnd
Nefndin starfaði töluvert á árinu. Þegar líða tók á árið varð ljóst að
bændur, sem sérhæft hafa sig í refarækt, stóðu mjög höllum fæti. Ákveðið
var að kanna fjárhagsstöðu þeirra og leita eftir stuðningi Framleiðnisjóðs,
Sofnlánadeildar landbúnaðarins og Byggðasjóðs. Undirtektir þessara
stofnana voru góðar nema Byggðasjóðs, sem enn hefur ekki gefið vilyrði
um fyrirgreiðslu til refabænda. Ákveðið var að kanna fjárhagsstöðu refa-
bænda, sem hófu refarækt 1984 eða fyrr. Leitað var til héraðsráðunauta
um upplýsingasöfnun og gekk það misjafnlega enda eru þeir störfum
hlaðnir. Það féll því meira og minna í hlut nefndarmanna að vinna þetta
Ketill A. Hannesson
92