Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 96
Kristján Guðlaugsson, tölvufræðingur hjá Framleiðsluráði, vann mikið
fyrir vinnuhópinn við framsetningu á tölum um þróun landbúnaðarins í
tölvu. I hagdeild var kynnt þróun landbúnaðarins annars vegar frá 1837
eða eftir því sem tölulegar upplýsingar náðu til og hins vegar frá 1977 eða á
síðustu tíu árum. Þróun landbúnaðarins var þannig sett fram á tveimur
tölvuskjám í myndrænu formi. Forritið Sagnabrunnur var notað til að setja
fram þróunina á nýtískulegan hátt í súluritum, línuritum og myndum. Það
sem gerði þessa framsetningu skemmtilega var, að súlurit teiknuðust upp í
mismunandi litum og gerðu annars dauðar tölur að lifandi mynd. Á þeim
skjá, sem sýndi þróun síðustu tíu ára, tókst okkur að tengja saman tal og
mynd með tæknilegri aðstoð frá Jóni ívarssyni, kvikmyndagerðarmanni.
Söguþráðurinn var talaður inn á segulband og tölvan stjórnaði síðan segul-
bandinu þannig, að þessi 15 mín. þáttur gekk stanslaust í þá tíu daga sem
sýningin stóð. Ekki er okkur kunnugt um að þetta hafi verið gert hér á
landi áður. Tvær tölvur voru fengnar að láni hjá Míkrótölvunni hf. og á
þeim voru sýndar áætlanir fyrir minkabú, refabú, svínabú, kúabú,
kanínubú og fimm ára greiðsluáætlun. Áætlun fyrir landbúnaðinn í heild
var einnig kynnt af Gunnlaugi A. Júlíussyni. Búnaðarfélagið kynnti einnig
bændabókhald, sem verið er að þróa, og fjárhagsbókhald fyrir bændur
með einkatölvu. Það forrit var selt á sýningunni fyrir 5.000 kr. Flönnuður
þess er Tölvumiðlun hf. Á veggjum voru sett upp súlu- og línurit, er sýndu
tekjur bænda síðustu ár og kostnað við búreksturinn samkvæmt búreikn-
ingum. Vinna við þessa deild tók mikinn hluta af sumrinu þó að undirbún-
ingur hafi byrjað í apríl.
Önnur störf
Um og eftir áramótin 1986/87 vann ég að því að gera úttekt á stöðu
landbúnaðarins og viðbrögðum bænda við búvörulögunum. Sú athugun
ieiddi í ljós, að viðbrögð bænda hafa verið mjög jákvæð að því leyti að
bændur hafa sparað í tilkostnaði við búvöruframleiðsluna.
Námskeið um arðsemisútreikninga kom mér að góðum notum, en það
var haldið af endurmenntunardeild Háskóla íslands og stóð í fjóra daga.
Tók saman leiðbeiningarbæklinginn „Bókhald á einkatölvu hentugt fyrir
bændur“ auk greina í Frey og Handbókina.
Samstarfsfólki þakka ég samstarfið á árinu.
12. janúar 1988,
Ketill A. Hannesson
94