Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 97
Freyr
I. Skýrsla Matthíasar Eggertssonar
Útgáfa Freys var með líkum hætti og undan-
farin ár. Út komu 24 tölublöð, 40 síður að
stærð að jafnaði. Undantekning var 2. tölu-
blað, sem fjallaði um fiskeldi og fiskrækt og
var 48 síður, og 19. tölublað, Stéttarsam-
bandsblað, sem var 80 síður.
Prentun blaðsins var boðin út í upphafi árs
og kom hagstæðast tilboð í verkið frá Ríkis-
prentsmiðjunni Gutenberg, sem annast þar
með áfram prentun blaðsins. Eru fyrirtæk-
inu hér með færðar þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf.
Ég sat aðalfund Stéttarsambands bænda
1987, sem haldinn var á Eiðum dagana 31. ágúst til 2. september. Nokkrar
aðrar ferðir fór ég til efnisöflunar.
Mannahald
Magnús H. Gíslason, blaðamaður, var lausráðinn til starfa við blaðið
framan af ári og vann sem svaraði einn mánuð. Um miðjan maí kom Júlíus
J. Daníelsson aftur til starfa við blaðið eftir dvöl í Danmörku. Rósa
Halldórsdóttir bar meginþunga af útvegun auglýsinga í blaðið og hún og
annað skrifstofufólk Búnaðarfélagsins annaðist ritvinnslu og ýmis verk
fyrir blaðið.
Önnur störf
Ég sá um að veita upplýsingar og hafa milligöngu um umsóknir íslendinga
að Búnaðarháskóla Noregs á Asi, en samningur er milli Búnaðarfélags
íslands og skólans um að tveir íslenskir námsmenn séu þar við nám í
hverjum árgangi.
Haustið 1987 hóf Helga Aðalgeirsdóttir þar nám á 2. námsári, en á 1.
námsári Jón Kristinn Baldursson í mjólkurfræði, Björn Gunnlaugsson í
garðyrkju og Eva Guðný Þorvaldsdóttir í landslagsarkitektúr.
í sambandi við 150 ára afmæli búnaðarsamtaka á Islandi lagði ég
nokkurt liö við boð og móttöku erlendra gesta til hátíðarhaldanna.
95