Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 107
III. Skýrsla Gísla Sverrissonar
Meginhlutverk mitt er, eins og tvö síðast
liðin ár, að aðstoða búnaðarsamböndin við
þau verkefni, sem hentar að leysa með hjálp
tölvu. Það hef ég ýmist gert með heimsókn-
um eða símaviðtölum. Ég hef aðstoðað bún-
aðarsambönd við val á tölvum og öðrum
búnaði varðandi notkun þeirra. Allmikill
hluti af tíma mínum hefur farið í forritun og
aðlögun forrita að fyrirhugaðri notkun. Þá
má ekki gleyma að talsverð vinna felst í að
fylgjast með nýjungum og verðþróun á
tölvusviðinu.
Á árinu var aðaltölva Búnaðarfélags ís-
lands tengd við símakerfið, svonefnt gagnanet Pósts og Síma. Valin var
ódýr lausn, sérstaklega með tilliti til kostnaðar þeirra, sem hyggjast
notfæra sér aðgang að tölvunni með þessum hætti. Byrjunarörðugleikar
urðu meiri en ástæða var til að búast við og sér enn ekki fyrir endann á
þeim. Engin ástæða er þó til að ætla annað en að tæknileg vandamál verði
leyst snemma á árinu 1988. Búnaðurinn stóð sig reyndar bærilega í frum-
raun sinni, en hún var að bera boð milli tölva í Bændahöllinni og Reiðhöll-
inni á landbúnaðarsýningunni Bú ’87. Talsverður tími fór í þetta verkefni,
ekki síst vegna fyrrnefndra bilana.
Tilgangurinn með þessari tengingu við símakerfið er að gefa búnaðar-
samböndum og öðrum, sem ástæður hafa, kost á upplýsingum, sem Bún-
aðarfélag íslands geymir nú þegar í tölvunni eða verður komið þar fyrir
vegna þessara nota.
Talsverður tími fór í undirbúning undir landbúnaðarsýninguna Bú’87,
en þar var starfsemi tölvudeildar kynnt. í tilefni hennar endurskrifaði ég
forrit, sem hermir eftir gangi súgþurrkunar.
Talsverður áhugi virðist vera hjá bændum á notkun tölvu sem hjálpar-
tæki við búrekstur og margir þeirra eiga tölvu nú þegar. Hingað til hefur
starf mitt einkum miðast við hagnýtingu tölvutækninnar hjá búnaðarsam-
böndunum. Það er hins vegar tímabært að huga að tölvunotkun hjá bænd-
um og þá einkum að útvega þcim hentug forrit.
105