Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 112
II. Skýrsla Porvaldar Björnssonar
Störf mín á skrifstofunni voru með svipuðu
sniði og áður. Unnið er að skýrslugerð um
fækkun refa, minka og vargfugla. Úrlausnir
og upplýsingar voru veittar í samtölum á
skrifstofu, í síma, bréflega og á fundum, sem
ég sat. Refa- og minkaveiðimönnum eru út-
veguð skotvopn, skotfæri, gildrur og ýmis
annar útbúnaður, sem þessu starfi tilheyrir.
A vorin fer drjúgur tími í að skipuleggja
veiðar, sérstaklega minkaveiðar. Þá er al-
gengt að oddvitar hringi og óski aðstoðar við
útvegun á veiðimönnum eða að ég fari með
nýliðum, sem tekið hafa að sér fækkunar-
A árinu voru gerðar tilraunir við minka- og refaveiðar, sem hugsanlega
mætti hagnýta sér til að lækka kostnað og auka árangur veiðanna.
í júlí og ágúst vann ég að uppsetningu á hlunnindabás, sem var hluti af
landbúnaðarsýningunni, sem haldin var í Reiðhöllinni.
Á síðast liðnu ári náðust að minnsta kosti 27 blárefir og blendingar. Þá
veiddust einnig svartir aliminkar.
Ferðalög:
Ársbyrjun: Ferðir farnar til að ná minkum á 3 bæjum í Mosfellsbæ. Á
einum stað var karlminkur búinn að drepa öll hænsnin í tveim ferðum eða
38 að tölu. Á öðrum stað var karlminkur búinn að drepa 16 hænur og 3
hana af tegund, sem kallast brúnn ítali og er í ræktun á bænum. Á þriðja
staðnum voru læða og karldýr búin að drepa 32 pekingandarunga, sem
voru 4 mánaða gamlir, 15 fullvaxnar og fullorðnar pekingendur, særa og
slasa 25 aðrar; þremur þeirra varð að lóga.
Apríl: Fækkun minka. Liður í athugunum á því, hvort ávinningur getur
verið af því að hefja minkaveiðar áður en þeir dreifa sér, að lokinni pörun.
Maí: Fór um Kjósarsýslu, Dalasýslu og A,- Barðastrandarsýslu.
Porvaldur Björnsson
110