Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 113
Júní: í byrjun júní var gerð tilraun til fækkunar á mávum með svefnlyfi við
flugbrautirnar á Keflavíkurflugvelli. Fór um Húnavatnssýslur, Skagafjarð-
arsýslu og Kjósarsýslu.
Júlí: Fór um Borgarfjarðar- og Mýrasýslur. Mávum fækkað með skot-
vopnum við æðarvörp og veiðiár. Teknir voru magar úr fuglunum og
magainnihald athugað.
Keflavíkurflugvöllur: Fækkun máva með skotvopnum við flugbrautir.
Fór um Arnessýslu.
Ág.—sept: Fór um A.- og V.-Skaftafellssýslur.
Október: Rangárvallasýsla. Fækkun hrafna, sem rifu sundur trjágróður
við sumarbústaði í kringum Hellu.
Aðrar ástæður ferða minna, sem ekki komu fram í upptalningu hér að
framan, eru eins og áður farnar til leiðbeiningar og aðstoðar við bændur,
æðarræktendur, veiðifélög o.fl.
Þá voru farnar margar styttri ferðir til þjálfunar á minkaveiðihundum og
hvolpum.
í þessum ferðum mínum náði ég 4 refum, 172 minkum, 113 hröfnum, 255
kjóum, 4724 svartbökum og öðrum stórum mávum.
Eins og áður var svefnlyf notað í tilraunaskyni við að fækka flugvargi og
koma í veg fyrir frekara tjón. Veiðistjóraembættið vann á árinu ásamt
trúnaðarmönnum sínum og fleiri aðilum: Með svefnlyfi: 1294 hrafna og
5450 svartbaka og aðra stóra máva. Með skotum: 759 hrafna og 10288
svartbaka og aðra stóra máva.
Að Helgada! í Mosfellsbæ annast Hreinn Ólafsson og hirðir um 20
hunda auk hvolpa. Frá búinu voru gefnir 34 hvolpar, og minkaveiði-
mönnum voru lánaðir þjálfaðir hundar til leitar að minkum og refa-
grenjum. Samtals náðust yfir 800 minkar á s.l. ári með hundum búsins.
Að lokum þakka ég Páli Hersteinssyni sem og öðrum samstarfsmönnum
á árinu ánægjulegt samstarf.
Þorvaldur Björnsson.
III