Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 120
væntanlega eitt stærsta uppgræðsluverkefnið á Mýrdalssandi. Þar er búið
að sá melfræi í 3 km langa spildu meðfram nýja veginum, sem nú er verið
að byggja upp.
Yfirborð Sandvatns á Biskupstungnaafrétti var hækkað á síðast liðnum
vetri með því að stífla útfall Sandár og nyrðra útfall Árbrandsár úr
vatninu. Við það fóru undir vatn víðáttumikil sand- og jökulleirsvæði, en
þaðan hefur verið mikið sandfok.
Girt var ný girðing í landi Merkurbænda í V.- Eyjafjallahreppi, en með
henni er unnt að koma stjórn á beitarálag á Þórsmerkursvæðinu.
Haldið var áfram skipulögðum endurnýunum á eldri landgræðslugirð-
ingum. Það eru um 70 landgræðslusvæði, sem eru í umsjón Landgræðsl-
unnar, og girðingarviðhald á um 900 km af girðingum. Áburðarflugið var
með svipuðum hætti og á undanförnum árum (sjá skýrslu Stefáns H. Sig-
fússonar).
Melgresi þroskaði vel fræ um allt land. Unnið var að melskurði með
tveimur melskurðarvélum í september og fram í október á Suðurlandi, í
Þingeyjarsýslum og í Sauðlauksdalsgirðingunni við Patreksfjörð. Hand-
skorið var í Meðallandi og Álftaveri. Mikil áhersla var lögð á að ná sem
mestu fræi og heildarmagn melfræs, sem safnaðist, var með því mesta, sem
hefur verið safnað, eða um fjörutíu tonn af óþurrkuðu og óþresktu mel-
gresi. Gerðar voru lagfæringar á þurrkunaraðstöðu í Gunnarsholti.
Ræktun og söfnun grasfræs hélt áfram í samvinnu við Rala og fékkst um-
talsvert magn af Beringspunktfræi. Safnað var fræi af lúpínu í Haukadal í
Biskupstungum. Grasfræið og lúpínufræið var þurrkað í Tilraunastöðinni á
Sámsstöðum. Vorið 1987 var lúpínu sáð í rúmlega þrjátíu hektara lands í
Gunnarsholti og á Skógarsandi.
Gróöureftirlitsstarfið var umfangsmikið og starfaði Andrés Arnalds að
þeim málum. Skoðuð voru mörg helstu afréttar- og beitilönd landsins,
oftast með viðkomandi gróðurverndarnefndum og/eða héraðsráðunaut-
um. Andrés var þó frá störfum í júní og hluta af júlí vegna flugslyss, er
varð í gróðurskoðunarferð á Mývatnsöræfum. Tilmælum var beint til sveit-
arstjórna og upprekstrarstjórna um upprekstrartíma á afrétti og fjölmargir
fundir voru haldnir með bændum og sveitarstjórnum um gróðurverndar-
mál.
Haldið var áfram uppgræðslu vegna væntanlegrar Blönduvirkjunar og
borið á fyrri sáningar. Þessar uppgræðsluaðgerðir hafa gengiö ótrúlega vel
miðað við aðstæður. Unnið var við fyrirhleðslur til varnar Iandbroti af
völdum fallvatna í öllum kjördæmum landsins.
Landgræðslu- og gróðurverndarmál voru mjög í brennidepli í fjölmiðl-
um íandsins á árinu. Ein af jákvæðari umfjöllunum varð vegna framtaks
Áburðarverksmiðju ríkisins um sölu á áburði og grasfræi í svokölluðum
landgræðslupokum. Samstarf var milli Náttúruverndarráðs, Skógræktar