Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 124
Ferðaþjónusta bænda
Á árinu 1987 urðu miklar breytingar á
skrifstofu Ferðaþjónustu bænda, bæði á
starfsliði hennar og verkefnum. FB hefur
verið sett það markmið af fjárveitingaraðil-
um að skapa sér sjálfstæðan rekstrargrund-
völl og aukin þörf er fyrir faglega ráðgjöf til
bænda, sem hyggjast reka ferðaþjónustu.
Það var einnig brýnt að gera allt sem hægt
var til að styrkja stöðu ferðaþjónustubænda
með því að auka nýtingu þjónustu, sem er
þegar fyrir hendi.
Oddný Björgvinsdóttir, sem starfaði við
skrifstofuna í 4 ár, lét af störfum. Kristinn
Jóhannsson, þáverandi formaður, starfaði þar til 1. apríl, en þá tók Paul
Richardson, nýkjörinn formaður Félags FB, við starfi framkvæmdastjóra
skrifstofunnar. Þórdís Eiríksdóttir hóf störf fyrir FB í byrjun ársins. Hefur
hún séð um ráðningu erlends starfsfólks og sumardvöl barna í sveit auk
gjaldkera- og skrifstofustarfa. 1. október hóf Margrét Jóhannsdóttir störf
sem ráðunautur í ferðaþjónustu.
Á árinu tók gildi svokallað svæðisstjóraskipulag þannig að landinu er
skipt niður í sex svæði, sem hafa hvert sinn svæðisstjóra. I samvinnu við
skrifstofuna sér svæðisstjóri um að veita leiðbeiningar um búnað og hafa
eftirlit með að það sem fram er boðið standist þær kröfur sem gera verður.
Bókunarþjónusta samtakanna var tölvuvædd í vor. Það gerir mun auð-
veldara að fá tölulegar upplýsingar um gesti, hvert þeir fara, hvað þeir
kaupa, hvað þeir gera o.s.frv., sem eru mjög mikilvægar til að byggja
áætlanir og markaðsstarfsemi á. Skrifstofan seldi 2612 gistinætur á árinu,
en þá eru ótaldar allar þær gistinætur, sem seldar voru í beinu framhaldi af
upplýsingum veittum af skrifstofu FB, en varla er hægt að segja að síminn
hafi stoppað yfir sumarmánuðina.
Mikil áhersla var lögð á kynningu og sölu á árinu. Meðal annars má
nefna útgáfu og dreifingu bæklingsins „Icelandic farm holidays 1987—88“
og einblöðung með öllum helstu upplýsingum um bæina. Á landbúnaðar-
sýningunni BU’87 var ferðaþjónusta bænda með kynningarbás, sem út-
búinn var í sumarbústað. Einnig var hestaleiga kynnt, og gafst gestum
kostur á að fara á hestbak. West Norden ferðakaupstefnan var haldin á
122