Búnaðarrit - 01.01.1988, Qupperneq 162
að verðjöfnun alls sæðis frá Nautastöðinni mundi auk þess að valda
hækkun á sæði frá stöðinni sjálfri, verða til þess að gera fjárhagsáætlun
hennar og þar með afkomu ótrygga. Miðað við núverandi fjárhagsstöðu
Búnaðarfélags íslands þykir hvorki búfjárræktarnefnd (né fjárhagsnefnd
Búnaðarþings) rétt að gera breytingu af þessu tagi. Ekki virðist heldur
verða vart mikillar óánægju hjá bændum með núverandi tilhögun.
Hitt má ef til vill fallast á, að frá félagslegu sjónarmiði færi betur á fullri
verðjöfnun hjá Nautastöðinni, en allmörg búnaðarsambönd verðjafna
þegar það sæði, sem þau dreifa hvert hjá sér.
Mál nr. 8
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 4611985 um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum — 228. mál 110. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur til, að lögfest verði frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. 46/1985 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum —
228. mál 110. löggjafarþings.
Þó bendir þingið á, að gildi þessarar lagabreytingar og annarra ákvæða
um staðgreiðslu sláturleyfishafa á sauðfjárinnleggi til bænda er algjörlega
háð því, að sláturleyfishöfum verði tryggt nægilegt lánsfé á réttum tíma til
þess, að unnt sé að uppfylla þessi lagaákvæði, en á það hefur töluvert
skort.
Greinargerð:
Tímamörk frumvarpsins ættu að geta gilt varðandi innlegg allt að
fullvirðisrétti hvers framleiðanda. Bent skal á, að þeir, sem leggja inn
kindakjöt hjá fleiri en einum aðila, þurfa að geta sýnt með öruggum hætti,
hvað líður nýtingu á fullvirðisrétti strax og innleggi lýkur.
Uppgjör á því, sem innlagt kann að verða umfram fenginn rétt, getur
þurft að bíða, þar til fyrir liggur, hvert heildarinnleggið er, og hvernig
uppgjöri kann að verða háttað fyrir innlegg umfram fullvirðisrétt, ef það
færist milli einstaklinga og/eða svæða og greiðsla kemur fyrir.
Mál nr. 9
Erindi Sambands garðyrkjubænda um aðild garðyrkjubændafélaga að
búnaðarfélagsskapnum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24
samhljóða atkvæðum:
160