Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 164
Mál nr. 11
Tillaga til þingsályktunar um eflingu skógrœktar á Fljótsdalshéraði — 76.
mál 110. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing hefur fengið til umsagnar tillögu til þingsályktunar um
eflingu skógræktar á Fljótsdalshéraði, sem lögð er fram á 110. löggjafar-
þingi 1987 og fjallar um 10 ára áætlun um skógrækt. Þingið mælir með
því, að tillagan nái fram að ganga, en skorar um leið á Alþingi að fela
Iandbúnaðarráðherra að láta gera hliðstæða héraðsáætlun í öðrum hér-
öðum, þar sem skógræktarskilyrði eru góð. Jafnframt verði tryggt, að
fjármagn fáist til þess að vinna eftir þessum áætlunum. Búnaðarþing mælir
með því, að aðalstöðvar Skógræktar ríkisins verði á Hallormsstað, og þar
verði frambúðarsetur fyrir starfsemi skógræktarinnar.
Mál nr. 12
Tillaga til þingsályktunar um nýtingu á kartöflum — 83. mál 110.
löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur til, að tillaga Guðna Ágústssonar, Valgerðar
Sverrisdóttur, Eggerts Haukdals, Árna Gunnarssonar, Steingríms J.
Sigfússonar og Egils Jónssonar um nýtingu á kartöflum verði samþykkt.
Mál nr. 13
Tillaga til þingsályktunar um innflutning loðdýra til kynbóta — 242. mál
110. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur til, að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu um
innflutning loðdýra til kynbóta, 242. mál 110. löggjafarþings.
Jafnframt vill þingið beina því til landbúnaðarráðherra að setja skýrar
reglur um innflutning þeirra, sem tryggi ýtrustu varúð gagnvart sjúkdóms-
hættu og fagleg vinnubrögð við val kynbótadýra, og hann sé framkvæmdur
á félagslegum grundvelli eða á vegum opinberra stofnana.
162