Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 167
IV.
Þingið tekur undir erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu um
heildarúttekt á nýbúgreinum, en minnir jafnframt á samþykkt hátíðar-
fundar Búnaðarþings um gerð heildaráætlunar um þróun landbúnaðar og
telur, að slíkri áætlun verði að fylgja úttekt á rekstrargrundvelli hverrar
búgreinar og eðlilegt, að nýbúgreinar hafi þar forgang.
Mál nr. 15
Erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu varðandi lögboðnar
greiðslur til bœnda samkvæmt jarðrœktar- og búfjárrœktarlögum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun um framlög til jarðabóta og
búfjárræktar, sem samþykkt var með 20 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Alþingis að ákveða
með fjárlögum og lánsfjárlögum, að aðeins 64% af jarðabótaframlögum
og einungis hluti af framlögum til búfjárræktar skuli greitt á þessu ári.
Þingið treystir því, að ekki verði gengið á þann rétt, sem ákvæði
jarðræktar- og búfjárræktarlaga veita bændum, og skorar á landbúnaðar-
ráðherra að beita sér fyrir því, að framlögin verði greidd að fullu á
komandi vori. Búnaðarþing bendir á, að jarðræktarlög taka tillit til
breyttra viðhorfa í landbúnaði.
Hlutdeild nýrra greina og hagræðingar hefur aukizt, en framlög til
framleiðsluhvetjandi greina í hefðbundinni búvöruframleiðslu svo og
heildarfjárþörf framlaga samkvæmt jarðræktarlögum hafa dregizt veru-
lega saman síðustu ár.
Bendir þingið á, að enn hefur ekki verið sett reglugerð við jarðræktarlög
nr. 56/1987 þrátt fyrir, að Búnaðarfélag íslands hafi lagt fram tillögur þar
að lútandi.
Ennfremur bendir þingið á, að Búnaðarþing samdi fyrir tveimur árum
frumvarp til nýrra búfjárræktarlaga, þar sem fram koma verulegar
breytingar til sparnaðar í hefðbundnum búgreinum og opnaðar eru leiðir
til stuðnings við aðrar greinar búfjárræktar. Lýsir þingið mikilli óánægju
með, að því máli hefur ekki enn verið fylgt eftir.
Þingið felur stjórn Búnaðarfélags Islands að leita samráðs við landbún-
aðarráðuneytið um leiðir til að koma þessum málum áfram.
Mál nr. 16 og 21
Erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu um endurskoðun félags-
legrar uppbyggingar bœndasamtakanna og félagskerfi landbúnaðarins og
erindi Egils Bjarnasonar og Gunnars Sœmundssonar um samþykktir
búnaðarsambanda og lög Búnaðarfélags íslands.
165