Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 170
Á vegum Búnaðarfélags Islands eru starfandi tveir ráðunautar til þess
að vinna að gerð forrita til notkunar hjá búnaðarsamböndunum og kenna
starfsmönnum þeirra að nota tölvurnar. Til þessa verkefnis hefur Búnað-
arfélag íslands fengið fjármagn frá Framleiðnisjóði.
Fyrir liggur, að einstakir bændur hafa þegar fengið sér tölvur, og gera
má ráð fyrir frekari þróun á því sviði. Áríðandi er að samræma sem mest
þennan tækjakost og tryggja það, að bókhald á vegum einstakra bænda
nýtist væntanlegri Hagstofnun til úrvinnslu og sameiginlegum upplýsinga-
banka.
Þá liggur fyrir, að búnaðarsamböndin eru mjög misjafnlega vel í stakk
búin til þess að nýta þann tækjakost, sem þegar hefur verið keyptur, og
sinna stærri verkefnum s.s. bændabókhaldi.
Því ber brýna nauðsyn til, að þeir menn, sem nú vinna að leiðbeiningum
á þessu sviði og áður er getið, hafi þau áherzluatriði, sem fram koma í
ályktun hér að framan sem forgangsverkefni á þessu ári, og tryggð verði
nauðsynleg verkstjórn til þess, að það náist fram.
Mál nr. 21
Erindi Egils Bjarnasonar og Gunnars Sæmundssonar um samþykktir
búnaðarsambanda og lög Búnaðarfélags íslands.
Afgreitt með máli nr. 16.
Mál nr. 22
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um stuðning við loðdýrarœkt.
Afgreitt með máli nr. 14.
Mál nr. 23
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um skiptingu fullvirðisréttar milli
búmarkssvæða.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing lítur svo á, að mál nr. 23, Erindi Búnaðarsambands
Austurlands um skiptingu fullvirðisréttar milli búmarkssvœða, falli efnis-
lega að málaflokkum Stéttarsambands bænda. Því vísar þingið þessu erindi
til Stéttarsambandsins.
168