Búnaðarrit - 01.01.1988, Page 171
Mál nr. 24
Erindi Gunnars Sæmundssonar um leigu og/eða sölu á fullvirðisrétti.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 16
atkvæðum gegn einu:
I.
Búnaðarþing leggur til, að sala á fullvirðisrétti til mjólkur- og kinda-
kjötsframleiðslu til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins verði háð samþykki
viðkomandi sveitarstjórnar og jarðanefndar á hliðstæðan hátt og sala
fasteigna og hafi þar með forkaupsrétt á fullvirðisrétti.
II.
Búnaðarþing beinir því til Byggðasjóðs, að hann veiti fyrirgreiðslu til að
mæta þeim fjárhagslegu skuldbindingum, sem leiða kunna af notkun
forkaupsréttar. í fyrsta lagi í formi lána til þeirra sveitarfélaga, sem eru
fámenn og fjárhagslega veik að mati sjóðsins. í öðru lagi bein framlög til
sveitarfélaga á sérstökum jaðarbyggðum eftir nánari skilgreiningu
sjóðsins.
Þessi fyrirgreiðsla Byggðasjóðs komi þó ekki til þar, sem takmörkun á
framleiðslu kindakjöts kann að verða aflétt.
III.
Búnaðarþing beinir því til Stéttarsambands bænda að kanna ýtarlega
grundvöll fyrir því, að framleiðsla kindakjöts á byggðalega veikum
svæðum verði sem minnst háð framleiðslutakmörkunum.
Hugsanleg framleiðsluaukning af þessum sökum leiði þó ekki til
skerðingar á öðrum svæðum. Framangreindar undantekningar taki þó
aðeins til mjög afmarkaðra svæða. Framleiðendur á viðkomandi svæðum
hafi allan rétt til að selja eða leigja skráðan fullvirðisrétt sinn, ef þeir kjósa
að draga saman eða hætta framleiðslu kindakjöts.
Mál nr. 25
Erindi Stefáns Halldórssonar og Sveins Jónssonar um söluskatt.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 20
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing hvetur stjórnir og stjórnendur búnaðarsambanda og
búnaðarfélaga til að kynna sér vel, hvernig hin nýja söluskattsinnheimta
kemur við starfsemi þessara aðila.
Vísað er í meðfylgjandi bréf frá ríkisskattstjóra til fjárhagsnefndar
169