Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 178
Mál nr. 32
Erindi jarðrœktarnefndar um framleiðslu og sölu á kartöflum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing skorar á landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir því, að
koma á bættu sölufyrirkomulagi á kartöflum á grundvelli laga nr. 46 frá
1985 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sem byggist á
framleiðslustjórnun og betra skipulagi á markaðssetningu í samráði við
samtök bænda. Teknar verði upp niðurgreiðslur á kartöflum að minnsta
kosti, sem nemur álögðum söluskatti á þessa vöru. Ekki verði leyfður
innflutningur á kartöflum eða vörum unnum úr þeim, þegar nægilegt
framboð er af þessum vörum úr innlendri framleiðslu.
Greinargerð:
Slæmt ástand ríkir nú í framleiðslu- og sölumálum kartöflubænda.
Framleiðendum er nauðsyn að fá fasta verðskráningu á kartöflum.
Þá er nauðsynlegt, að stærð kartöfluakra og framleiðslumagn sé í
samræmi við markaðinn. Nú eru árferðissveiflur mjög miklar í kartöflu-
rækt, og gera verður ráð fyrir, að í góðu árunum verði framleiðsla umfram
neyzluþörf. Af þessum ástæðum er framleiðslustjórn nauðsynleg.
Fram hafa komið hugmyndir um að kjósa markaðsnefnd kartöflu-
bænda, sem annaðist og hefði umsjón með framkvæmd framleiðslustjórn-
unar í kartöfluræktinni, stofnræktun, vöruþróun, kynningu og auglýsing-
um á kartöflum. Telja verður eðlilegt, að framleiðendur afhendi þessa
afurð til afurða- eða dreifingarstöðva, þar sem varan sé verðskráð,
gæðamerkt og dreift til smásölu. Um síðustu áramót var lagður söluskattur
á kartöflur, sem hækkar mjög verð þeirra. Kartöflur eru á hvers manns
borði daglega, því er hagsmunamá! allra, að verð sé hóflegt. Því er Iagt til,
að kartöflur verði niðurgreiddar. Það myndi einnig auðvelda skipulagn-
ingu og markaðssetningu á þessari vöru. Þá er fráleitt, þegar innlend
framleiðsla er nægileg, að leyfa nokkurn innflutning á kartöflum eða
vörum, unnum úr þeim.
Búnaðarþing telur skjótra aðgerða þörf, því að með núverandi ástandi
stefnir í ógöngur í þessari búgrein.
Mál nr. 33
Erindi búfjárrœktarnefndar varðandi eftirlit með riðuveikivörnum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 19
samhljóða atkvæðum:
176