Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 180
Á 13. þingfundi, föstudaginn 4. marz kl. 15:00, fóru fram kosningar í
eftirtaldar nefndir:
1. Kosnir í búfrœðslunefnd tveir fulltrúar til fjögurra ára skv. lögum um
búnaðarfrœðslu nr. 55/1978.
Kosningu hlutu: Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur,
Gunnar Pórarinsson, héraðsráðunautur.
2. Kosnir fjórir aðalmenn ogfjórir til vara í kynbótanefnd sauðfjárræktar
til fjögurra ára:
Kosningu hlutu þessir héraðsráðunautar:
Aðalmenn: Hjalti Gestsson,
Guðmundur Sigurðsson,
Ólafur G. Vagnsson,
Páll Sigbjörnsson.
Varamenn: Sveinn Sigurmundsson,
Brynjólfur Sæmundsson,
Friðrik Jónsson,
Bjarni Hákonarson.
3. Nefnd þriggja manna til að hafa yfirumsjón með gerð heildaráætlunar
um þróun landbúnaðarins til nœstu aldamóta, sbr. mál nr. 31.
Kosningu hlutu þessir búnaðarþingsfulltrúar:
Sveinn Jónsson,
Egill Jónsson,
Sigurður Þórólfsson.
4. Nefnd þriggja manna til að vinna að endurskoðun á lögum nr. 46/1985
um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sbr. mál nr. 28.
Kosningu hlutu þessir búnaðarþingsfulltrúar:
Hermann Sigurjónsson,
Bjarni Guðráðsson,
Stefán Halldórsson.
Þá var komið að þingslitum. Höfðu þingfundir verið haldnir í Búnaðar-
þingssal inn af Súlnasal eftir setningu þess. Var nú gert hlé á fundinum,
meðan fundarmenn og gestir fluttu sig um set í veitingasal á sömu hæð í
nýbyggingu, þar sem þingslit fóru fram.
Þar tók til máls Hjörtur E. Þórarinsson, forseti þingsins. Hann ávarpaði
fulltrúa og gesti og mælti síðan á þessa leið:
„Búnaðarþingi er að Ijúka. Þetta hefur verið stutt þing, hefur staðið í 12
daga og haldið 13 fundi.
178