Heilbrigðismál - 01.12.1991, Blaðsíða 6

Heilbrigðismál - 01.12.1991, Blaðsíða 6
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ / Ljósmyndarii Ólafur var í fyrstu stjórn Krabba- meinsfélags Reykjavíkur, fyrsta krabbameinsfélagsins. Hvað segir hann um helstu verkefnin í upp- hafi? „Félagið safnaði fé til kaupa á lækningatækjum en segja má þó að fræðsla um sjúkdóminn hafi verið efst á blaði. Síðar hóf Krabbameinsfélag Reykjavíkur skipulega leit að krabbameini en Krabbameinsfélag íslands tók fljótlega við þeirri starf- Stjórn Krabbameinsfélags íslands 1978-79 en Ólafur var þá formaður félagsins. Standandi eru, talið frá vinstri: Matthías Johannessen rit- stjóri, dr. Gunnlaugur Snædal prófessor, Vigdís Magnúsdóttir hjúkrunarforstjóri, dr. Friðrik Einarsson fyrrv. yfirlæknir, Er- lendur Einarsson fyrrv. forstjóri og Ólafur Örn Arnarson yfirlækn- ir. Sitjandi eru: Jónas Hallgríms- son prófessor, dr. Ólafur Bjarna- son prófessor, Halldóra Thorodd- sen, sem þá var framkvæmdastjóri félagsins, og Hjörtur Hjartarson fyrrv. forstjóri. Krabbameinsfélag íslands semi og hefur rekið hana af mikl- um myndarskap." Ólafur fór vestur um haf til að kynna sér frumurannsóknir sem voru grundvöllur fyrir leitinni. Hann var beðinn að segja frá því. „Ég fór til Bandaríkjanna vorið 1956 og dvaldi þar um tíma. Meðal annars var ég í New York hjá Dr. Papanicolau, sem rannsóknarað- ferðin „Pap test" eða „Pap smear" er kennd við. Eftir heimkomuna skrifaði ég grein í Læknablaðið og vakti athygli á þessari rannsóknar- aðferð, sem síðar var svo tekin hér upp." En hvað segir Ólafur um upphaf krabbameinsskráningar hér á landi? „Danir munu hafa verið hinir fyrstu í heiminum, árið 1942, til að taka upp formlega krabbameins- skráningu sem náði til heillar þjóð- ar, undir forystu Johannesar Clem- mesen. Hinar Norðurlandaþjóðirn- ar bættust svo við á sjötta áratugn- um. Vefjagreining illkynja æxla var í mínum verkahring á Rannsókna- stofu Háskólans. Það varð því að samkomulagi að ég tæki að mér skráningu allra krabbameina hér á landi á vegum Krabbameinsfélags íslands. Frá og með byrjun árs 1954 safnaði ég saman öllum greindum tilfellum á landinu en ekki var talið rétt að byggja á eldri upplýsingum en frá 1955. 6 HEILBRIGÐISMÁL 4/1991

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.