Heilbrigðismál - 01.12.1991, Page 28

Heilbrigðismál - 01.12.1991, Page 28
hristingurinn setur á einhvern hátt viljastjórnina á neyslu úr skorðun. Sálfræðingarnir telja að ungmeyjan sjái, þegar hún hefur látið hann í sig, að megrunin sé farin út um þúfur þann daginn, bindindið hafi brugðist og því sé eins gott að syndga ærlega. Niðurstaða sálfræðinganna af þessari rannsókn er að matarkúr sé háskaleg leið til megrunar. Þá dofnar sem fyrr segir eðlileg, lík- amleg stjórn á matarlyst, enda hef- ur þessi stjórn að mati megrandans brugðist, ella þyrfti hann ekki í megrunarkúr. Einstaklingurinn finnur eftir sem áður fyrir svengd og mettun, en leiðir þessi merki hjá sér og fylgir - eða reynir að fylgja - áætlun um t.d. 1500 kalóríur á dag, sem stundum er brotið niður í 350 kalóríur í morgunmat o.s.frv. En alltaf er hætta á að vamirnar bregð- ist. Þá er eins og flóðgáttir bresti og megrandinn borðar langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Eins hættir honum til að bregðast við álagi og streitu með ofáti. Sá sem reynir að megra sig með breyttri neyslu líður á víxl af sulti og ofáti. Tryggingafélög færa fyrir því tölfræðileg rök að þyngd um- fram það sem hæð og líkamsbygg- ing segja til um sé heilsuspillandi. Samkvæmt skýrslum frá Heilbrigð- isstofnun Bandaríkjanna (NIH) stofna menn þar í landi heilsu sinni í talsverða hættu þótt um- framþunginn sé ekki nema 5 pund (rúmlega 2 kg). Kanadísku sálfræð- ingarnir benda á það að þótt hér sé sýnt fram á greinilega fylgni milli langlífis og líkamsþunga sé ósann- að að umframþyngdinni sem slíkri sé um að kenna. Margt sem nýlega hefur komið fram bendir að mati þeirra til þess að það sé megrunin fremur en offitan sem spilli heilsu feitra manna. Það er engin tilvilj- un, að mati sálfræðinganna, að helstu neyslusjúkdómar manna, sjúkleg höfnun matar (anorexia nervosa) og sjúkleg græðgi (bulim- ia nervosa), eru ævinlega fylgi- kvillar megrunarkúra. Heimildir: Peter Herman, Janet Polivy: Fat is a psychological issue. New Scientist, 16. nóv- ember 1991. örnólfur Thorlacius: Lífeölisfræöi. Iöunn, Reykjavík, 1991. Örnólfur Thorlacius er rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Allir eiga rétt ó reyklausu andrúmslofti ó stöðum sem almenningur hefur aðgang að og í almenningsfarartækjum. TÓBAKSVARNANEFND Korni Frokostbrod .ORAli KÖRNI wm KORNI flatbrod i KORNI EKSTRA TYKJ FLATBR0D Trcfjaríkt brauð víð allra hæfí Góð hcílsa cr gæfa hvcrs manns Faxafell hf. símí 51775 28 HEILBRIGÐISMÁL 4/1991

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.